SKILMÁLAR UM EINKUNNAGJÖF OG LJÓSMYNDIR

Þessi eiginleiki í Apple Maps („eiginleiki“) gerir þér („þú“, „þig“, „þér“, „þín“ eða „þinn“) kleift að hlaða upp og skoða myndir, texta eða annað efni (sem hvert um sig nefnist „framlag“). Notkun þín á þessum eiginleika verður að samræmast skilmálunum á www.apple.com/legal/sla/ og þessum skilmálum um einkunnagjöf og ljósmyndir (sem saman nefnast „skilmálar“), sem kunna að vera uppfærðir öðru hvoru. Þú berð ábyrgð á að athuga reglulega hvort skilmálarnir hafi verið uppfærðir.

Skilyrði fyrir notkun á þessum eiginleika:

Framferði þitt. Þú gerir þér grein fyrir því að framlagið þitt er algjörlega á þína ábyrgð. Að sama skapi eru önnur framlög á ábyrgð einstaklinganna sem bjuggu þau til. Þetta þýðir að um samband þitt við Apple gildir eftirfarandi: (a) Þú berð alla ábyrgð á innihaldi allra framlaga sem þú hleður upp, birtir, sendir í tölvupósti, miðlar, geymir eða gerir tiltæk með öðrum hætti í gegnum notkun þína á þessum eiginleika og (b) einstaklingurinn sem bjó til framlagið er ábyrgur fyrir öllum framlögum sem hann hleður upp. Í hvorugu ofangreindu tilvika ber Apple nokkra ábyrgð gagnvart þér nema þú sért einstaklingur sem stundar ekki viðskiptarekstur og Apple sé skaðabótaskylt vegna vanrækslu eða vísvitandi misferlis.

  Framlagið þitt má ekki:

  1. innihalda nokkuð efni sem þú hefur ekki heimild, rétt eða leyfi til að nota;
  2. innihalda persónuupplýsingar um þig eða persónu- eða trúnaðarupplýsingar í eigu annarra eða um aðra (framlagið þitt má til dæmis ekki innihalda ljósmynd þar sem bera má kennsl á þig eða einhvern annan) eða brjóta gegn friðhelgi einkalífs annarra með nokkrum hætti;
  3. innihalda beiðni eða aðra tilraun til að komast yfir persónuupplýsingar einhvers annars, þar á meðal einstaklings undir lögaldri (samkvæmt skilgreiningu gildandi laga þar sem þú býrð);
  4. villa á þér heimildir eða staðhæfa ranglega um annan einstakling eða tengsl þín við viðkomandi;
  5. innihalda eða miðla ruslpósti, þar með talið en ekki takmarkað við óumbeðnar eða óheimilar auglýsingar, kynningarefni eða tilkynningar;
  6. samanstanda af, hvetja til eða kynna ólöglega, sviksamlega eða blekkjandi starfsemi;
  7. innihalda einkunn um eða mynd af öðrum stað en þeim sem framlagið þitt fjallar um;
  8. innihalda nokkuð niðrandi, ærumeiðandi, særandi, dónalegt, móðgandi, lítillækkandi, skaðlegt, ólöglegt, blekkjandi, áreitandi, ógnandi, hatursfullt, ofbeldisfullt, klúrt eða klámfengið efni, kynþáttaníð eða annað ámælisvert efni; eða
  9. brjóta gegn viðmiðum Apple um framlög (sem skráð eru hér að neðan).

Þú gerir þér jafnframt grein fyrir því að við notkun á eiginleikanum kannt þú að sjá framlag sem þér finnst móðgandi, ósæmilegt eða óþægilegt og að framlag þitt geti birt öðrum efni sem þeim finnst óþægilegt. Apple ábyrgist ekki nákvæmni, heilleika eða gæða nokkurra framlaga. Þú gerir þér grein fyrir og samþykkir að notkun þín á eiginleikanum og öllum framlögum er alfarið á þína ábyrgð og að Apple lýsi ekki yfir stuðningi við nokkur framlög notenda. Ef þú sérð framlag sem samræmist ekki þessum skilmálum biðjum við þig um að láta okkur vita í gegnum eiginleikann „Tilkynna um vandamál“. Apple kann, að eigin ákvörðun, að loka fyrir notkun á og/eða loka alfarið reikningum notenda sem brjóta gegn þessum skilmálum (þar á meðal notenda sem grunaðir eru um ólöglegt athæfi) með notkun sinni á þessum eiginleika. Þessi málsgrein undanskilur Apple þó ekki skaðabótaskyldu gagnvart þér þegar um er að ræða dauðsfall eða líkamstjón sem stafar af vanrækslu Apple eða sem ekki er hægt að undanskilja samkvæmt lögum. Í engum tilfellum skal Apple vera skaðabótaskylt gagnvart þér vegna nokkurs hagnaðartaps, viðskiptataps, tekjutaps, taps á samningsstöðu eða viðskiptavild eða nokkurs óbeins taps.

Breytingar á efni þínu. Þú gerir þér grein fyrir að til að gera framlagið þitt aðgengilegt á Apple Maps sendir Apple hugsanlega framlagið þitt um almenningsnet af ýmsum toga, á mismunandi geymslumiðlum og lagar eða breytir framlaginu þínu til að uppfylla tæknilegar kröfur tengdra neta, tækja eða tölva. Þú gerir þér jafnframt grein fyrir því að Apple áskilur sér ávallt rétt til að ákvarða hvort framlag sé viðeigandi og í samræmi við þessa skilmála (en er ókleift að staðfesta að myndin sé tekin á staðnum sem framlagið snýr að) og kann að yfirfara, breyta, fjarlægja og/eða neita að birta framlag hvenær sem er, án fyrirvara og að eigin ákvörðun. Apple kann til dæmis að gera framlag óskýrt til að fjarlægja persónu- eða trúnaðarupplýsingar eða birta ekki framlag þar sem búið er að fjarlægja staðsetningargögn eða þar sem Apple er ókleift að staðfesta staðsetninguna. Þú samþykkir að leyfið sem þú veitir Apple heimili Apple að grípa til slíkra aðgerða af hvaða toga sem er.

Leyfi frá þér. Þú heldur fullum og óskoruðum höfundarrétti að framlaginu þínu. Að því marki sem lög heimila, og með því að senda inn eða birta framlag, veitir þú Apple (þar á meðal samstarfsaðilum þess eða leyfishöfum) alþjóðlegt, gjaldfrjálst, almennt leyfi til að nota, hýsa, geyma, dreifa, flokka, miðla, gera athugasemdir um, breyta, búa til afleidd verk út frá, sýna, fjölrita, lagfæra, aðlaga, birta, þýða, flytja opinberlega, sýna opinberlega, bjóða, opinbera og nýta á annan hátt slíkt framlag án frekari tilkynningar til þín, án þess að höfundar sé getið (að því marki sem það brýtur ekki í bága við skylduákvæði gildandi laga) og án nokkurrar umbunar til þín eða skuldbindinga gagnvart þér, til notkunar í eða í tengslum við Apple Maps (þar á meðal, en ekki takmarkað við, í tengdu markaðs- og kynningarefni). Að því marki sem lög heimila samþykkir þú jafnframt að beita ekki og/eða afsala þér öllum sæmdarrétti, eða útvega slíkt samkomulag eða afsal frá þriðja aðila, sem þú eða einhver þriðji aðili kann að njóta varðandi nokkra athöfn eða athafnaleysi í tengslum við notkun á þessu leyfi á framlagi þínu sem kann að brjóta í bága við sæmdarrétt þinn eða einhvers þriðja aðila, þar á meðal réttinn til þess að höfundar sé getið, réttinn til þess að rangs höfundar sé ekki getið og réttinn til þess að höfundarverk hljóti ekki niðrandi meðferð. Þetta leyfi heldur gildi sínu þar til þú eða Apple fjarlægir framlag þitt með því að eyða því úr eiginleikanum. Þú viðurkennir og samþykkir að þegar Apple hefur móttekið beiðni þína um að framlag þitt sé fjarlægt eða reikningi þínum eytt muni Apple geyma viðkomandi gögn í allt að þrjá mánuði, í stjórnunarlegu og hefðbundnu skjalavistunarskyni, áður en þeim er eytt fyrir fullt og allt. Þú samþykkir að öll framlög sem þú sendir inn eða birtir séu algjörlega á þína ábyrgð, þau brjóti hvorki gegn né gangi á rétt annarra lögaðila eða brjóti gegn lögum af hvaða toga sem er og leiði ekki til né hvetji til lögbrota eða að öðru leyti ólöglegrar hegðunar. Þú samþykkir að framlag þitt stofni ekki til nokkurs konar sambands milli þín og Apple og að þú eigir ekki rétt á nokkurri umbun.

Þú samþykkir og ábyrgist að framlag þitt sé í samræmi við þessa skilmála og að þú sért eigandi þess eða hafir öll tilskilin réttindi og leyfi fyrir því, án þess að þörf sé á greiðslu til annars einstaklings eða lögaðila fyrir notkun (og notkunarheimild til Apple) á framlagi þínu á einhvern þann hátt sem hér er getið. Að því marki sem lög heimila samþykkir þú að halda Apple, og starfsmönnum þess og yfirmönnum, skaðlausum gagnvart hvers konar kröfum, skaðabótaskyldu, tapi eða kostnaði (þar á meðal lögfræðikostnaði) á hendur Apple frá einhverjum þriðja aðila vegna eða í tengslum við brot þitt á þessum skilmálum.

Reikningur þinn og framlag. Apple áskilur sér rétt til þess að beita öllum þeim aðferðum sem Apple metur nauðsynlegar eða viðeigandi til að framfylgja skilmálunum og/eða sannprófa að þeim sé fylgt í hvívetna. Nauðsynlegt getur verið – samkvæmt lögum, lagaferlum, málaferlum og/eða beiðni frá opinberum yfirvöldum í búsetulandi þínu eða öðrum löndum – að Apple hafi beint samband við þig. Við kunnum einnig að gefa upp persónulegar upplýsingar um þig ef við teljum það nauðsynlegt eða viðeigandi af orsökum sem varða þjóðaröryggi, löggæslu eða annan almannahag. Við kunnum einnig að gefa upp upplýsingar um þig, en aðeins ef lögmætur grundvöllur er fyrir því, ef við teljum það nauðsynlegt til að framfylgja skilmálum okkar eða vernda starfsemi okkar eða notendur. Þetta gæti m.a. átt við um veitingu upplýsinga til opinberra yfirvalda. Öll slík birting, notkun eða vinnsla á gögnunum þínum er innt af hendi í samræmi við gildandi gagnaverndarlög (frekari upplýsingar má fá í gagnaverndarstefnu okkar á https://www.apple.com/legal/privacy/en-ww/).

Yfirlýsing um höfundarrétt. Hafðu samband við höfundarréttarfulltrúa Apple ef þú telur að framlag brjóti á höfundarrétti þínum, eins og kemur fram í höfundarréttarstefnu okkar á https://www.apple.com/legal/trademark/claimsofcopyright.html. Apple hefur innleitt stefnu til að loka, við viðeigandi kringumstæður, reikningum notenda sem brjóta ítrekað í bága við skilmálana, þar á meðal notendur sem leitast við að hlaða upp efni sem brýtur í bága við skilmála allt að þrisvar (3) sinnum. Hluti af innleiðingu þessarar reglu felur í sér að Apple getur með einhliða ákvörðun sett reikninga notenda sem auðkenndir hafa verið sem þátttakendur í brotlegum athöfnum, eða af öðrum tengdum ástæðum, í bið.

Vörumerki. Apple, Apple-merkið, Apple Maps og önnur vörumerki Apple, þjónustumerki, grafík og lógó sem eru notuð í tengslum við eiginleikann eru vörumerki eða skráð vörumerki Apple Inc. í Bandaríkjunum og/eða í öðrum löndum. Hægt er að nálgast lista yfir öll vörumerki Apple hér - https://www.apple.com/legal/trademark/appletmlist.html. Önnur vörumerki, þjónustumerki, grafík og lógó sem notuð eru í tengslum við eiginleikann eru hugsanlega vörumerki viðkomandi eigenda. Þér er hvorki veittur réttur né leyfi af neinum toga til að nota áðurnefnd vörumerki og samþykkir ennfremur að þú munir ekki fjarlægja, dylja né breyta tilkynningum um eignarhald (þ.m.t. tilkynningum um vörumerkjarétt og höfundarrétt) sem fylgja með eða felast í eiginleikanum.

Aldur. Þessi eiginleiki er aðeins í boði fyrir einstaklinga sem eru 14 ára eða eldri (eða yfir sambærilegum lágmarksaldri í viðkomandi lögsagnarumdæmi).

VIÐMIÐ UM FRAMLÖG

Framlagið þitt má ekki innihalda neitt af eftirfarandi innihaldi eða efni:

  • Blótsyrði eða ögrandi handahreyfingar
  • Nekt þar sem sést í kynfæri
  • Blóð
  • Vopn
  • Fjárkúgun
  • Misnotkun á börnum
  • Kynlíf eða kynferðislegt efni
  • Fíkniefni eða áhöld til fíkniefnaneyslu
  • Vændi
  • Áfengi (gildir um fyrirtæki á Íslandi og Ítalíu)
  • Reykingarvörur (gildir um fyrirtæki á Íslandi, Ítalíu og í Bretlandi)
  • Síur
  • Yfirlagnir
  • Samsettar myndir
  • Ófullnægjandi lýsing (þ.e. það er of dimmt eða of mikil birta þannig að viðfangsefnið er ekki sýnilegt)
  • Óskýr mynd
  • Vatnsmerki
  • Yfirlýsingar um höfundarrétt
  • Dagsetningar- eða tímastimplar
  • „Memoji“ eða sjálfsmyndir
  • Myndhlutfall yfir 2.2:1
  • Snið annað en JPEG, PNG eða HEIC
  • Upplausn sem er undir 960x1280 eða yfir 4864x4864
  • Vinnsla á óunninni mynd
  • Klippimyndir
  • Ljósmyndir úr myndabanka
  • Tvíteknar ljósmyndir