View Warranty version
-
Takmörkuð ábyrgð Apple til eins (1) árs
(ÍSLAND) -
Aðeins fyrir merkjavöru frá Apple
-
NEYTENDALÖG
Takmörkuð ábyrgð Apple til eins árs er óáskilin ábyrgð frá framleiðanda. Í henni felast réttindi sem aðskilin eru réttindum neytendalaga, meðal annars réttindi vegna vara sem uppfylla ekki kröfur.
Sem slík er takmörkuð ábyrgð Apple til eins árs viðbót við, en kemur ekki í staðinn fyrir, réttindi sem neytendalög veita.
Ef vara er gölluð geta neytendur einkum og sér í lagi fært sér í nyt réttindi þau sem innifalin eru í lögum nr. 48/2003 um kaup neytenda. Kröfutími fyrir kaup neytenda á Íslandi er tvö ár (fimm ár ef endingartími vörunnar er áætlaður mun lengri en allajafna) frá afhendingu vöru. Slíkar kröfur falla undir réttindi og kröfur sem kveðið er á um í landslögum.
Neytendur geta valið hvort þeir fara fram á þjónustu samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs eða neytendalögum.
Mikilvægt: Skilmálar takmarkaðrar ábyrgðar Apple til eins árs eiga ekki við þegar krafa er lögð fram samkvæmt neytendalögum.
Frekari upplýsingar um neytendalög fást á vefsvæði Apple (www.apple.com/legal/warranty/statutoryrights.html) eða hjá viðkomandi neytendasamtökum.
YFIR HVAÐ NÆR ÞESSI ÁBYRGÐ?
Apple Distribution International Ltd., Hollyhill Industrial Estate, Hollyhill, Cork, Írlandi (eða síðari handhafi réttinda) („Apple“), ábyrgist vélbúnað og aukabúnað frá Apple í upprunalegum umbúðum („Apple-vara“) vegna galla í efni eða frágangi þegar hann er notaður í samræmi við notendahandbækur, tæknilýsingar og aðrar útgefnar leiðbeiningar fyrir Apple-vörur frá Apple í EITT (1) ÁR frá upphaflegum kaupum kaupanda („ábyrgðartímabil“). Þú getur nýtt þér úrræði fyrir Apple-vörur sem bjóðast með takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs á næsta þjónustustað Apple nánast hvar sem er í heiminum (upplýsingar í hlutanum „Hvernig á að fá ábyrgðarþjónustu“). Ef gallar í efni eða frágangi koma í ljós geturðu beint kröfum þínum til Apple, jafnvel þótt þú hafir keypt Apple-vöruna af þriðja aðila.
Athugaðu: Allar kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs falla undir skilmálana í þessu ábyrgðarskjali.
Að auki býður Apple upp á aðgang að tækniaðstoð í gegnum síma í níutíu (90) daga frá afhendingu Apple-varanna.
YFIR HVAÐ NÆR ÞESSI ÁBYRGÐ EKKI?
Þessi ábyrgð á ekki við vélbúnað eða hugbúnað sem ekki er frá Apple, jafnvel þótt hann sé innpakkaður eða seldur með vélbúnaði frá Apple.
Hugsanlega fylgir vörum sem ekki eru frá Apple ábyrgð frá framleiðanda sem býður upp á bætur til viðbótar við réttindi sem falin eru í neytendalögum. Upplýsingar er að finna á vöruumbúðum og í fylgiskjölum.
Upplýsingar um réttindi þín í tengslum við notkun hugbúnaðarins eru í meðfylgjandi leyfissamningi.
Þú getur fengið þjónustu í löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss án þess að þurfa að greiða fyrir flutning og meðhöndlun. Þjónustuvalkostir utan þessa svæðis kunna að vera takmarkaðir. Ef tiltekinn þjónustuvalkostur er ekki í boði fyrir Apple-vöruna í slíku landi skal Apple eða fulltrúi þess upplýsa þig um viðbótarkostnað vegna flutnings og meðhöndlunar sem kann að bætast við áður en þjónusta er veitt. Kostnaður vegna flutnings og meðhöndlunar bætist ekki við í löndum þar sem Apple starfrækir Apple-verslun eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple („viðurkenndur þjónustuaðili Apple“) (lista yfir núverandi þjónustustaði má finna á support.apple.com/kb/HT1434).
Þegar hringt er í Apple kann kostnaður við símtalið að falla á þig, allt eftir staðsetningu þinni. Símafyrirtækið þitt veitir frekari upplýsingar.
Þessi ábyrgð nær ekki til: (a) rekstrarvara, t.d. rafhlaðna eða hlífðarhúðunar sem gert er ráð fyrir að rýrni með tímanum, nema þegar bilunin er tilkomin vegna galla í efni eða frágangi; (b) útlitslegra skemmda, meðal annars rispa, beyglna og brotins plasts við tengi, nema þegar bilunin er tilkomin vegna galla í efni eða frágangi; (c) skemmda sem hljótast af notkun með íhlut eða vöru frá þriðja aðila sem uppfyllir ekki gæðalýsingu Apple-vörunnar (finna má gæðalýsingar Apple-vara á www.apple.com undir tæknilegum upplýsingum fyrir hverja vöru og einnig eru þær fáanlegar í verslunum); (d) skemmda sem rekja má til slysa, misnotkunar, rangrar notkunar, elds, vökva, jarðskjálfta eða annarra ytri þátta; (e) skemmda sem rekja má til notkunar Apple-vörunnar sem ekki er í samræmi við leiðbeiningar í notendahandbókum, tæknilýsingum og öðrum útgefnum leiðbeiningum Apple-vörunnar; (f) skemmda sem rekja má til vinnu (þ.m.t. uppfærslu og viðbóta) sem ekki er framkvæmd af fulltrúa Apple eða viðurkenndum þjónustuaðila Apple („viðurkenndur þjónustuaðili Apple“); (g) Apple-vöru sem hefur verið breytt til að breyta eiginleikum hennar eða afköstum án skriflegs leyfis frá Apple; (h) skemmda vegna eðlilegs slits eða aldurs Apple-vörunnar; (i) þeirra tilvika þegar raðnúmer hefur verið fjarlægt eða afmáð af Apple-vörunni eða (j) þeirra tilvika þegar Apple hefur fengið upplýsingar frá viðeigandi opinberum yfirvöldum eða skráningarskrifstofum um að vörunni hafi verið stolið eða ef þú getur ekki gert öryggisráðstafanir með°aðgangskóða óvirkar°eða aðrar°öryggisráðstafanir sem ætlað er að koma í veg fyrir aðgang að Apple-vörunni í leyfisleysi og þú getur ekki sannað með neinum hætti að þú sért heimilaður notandi vörunnar (t.d. með því að framvísa kvittun). Að því marki sem gildandi lög leyfa kann Apple að veita slíkum yfirvöldum eða skráningarskrifstofum upplýsingar um kenni vélbúnaðar úr Apple-vörunni af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir svik.
MIKILVÆGAR TAKMARKANIR
Apple kann að takmarka ábyrgðarþjónustu fyrir Apple TV við lönd þar sem Apple eða viðurkenndir endursöluaðilar þess selja tækið.
Að því er varðar iPad-tæki með tengingu við farsímakerfi og iPhone-tæki tryggir ábyrgðin þjónustu fyrir lönd innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Þjónustuvalkostir utan þessa svæðis kunna að vera takmarkaðir vegna tæknimála sem Apple hefur ekki stjórn á – sjá upplýsingar hvað varðar iPad-tæki með tengingu við farsímakerfi og iPhone-tæki á www.apple.com/iphone/LTE/ og www.apple.com/ipad/LTE/.
Að því er varðar iPad-tæki tryggir ábyrgðin ekki þjónustu í Kína vegna mismunar á Wi-Fi-tengingum sem Apple hefur ekki stjórn á.
ÞÍNAR SKYLDUR
EF APPLE-VARAN ÞÍN GETUR VISTAÐ HUGBÚNAÐARFORRIT, GÖGN OG AÐRAR UPPLÝSINGAR ÆTTIRÐU REGLULEGA AÐ TAKA ÖRYGGISAFRIT AF UPPLÝSINGUM Í GEYMSLUMIÐLI APPLE-VÖRUNNAR TIL AÐ TRYGGJA ÖRYGGI EFNISINS OG VERJA ÞAÐ MÖGULEGUM BILUNUM.
Áður en þú afhendir Apple-vöruna þína inn til ábyrgðarþjónustu skaltu taka öryggisafrit af efninu í geymslumiðlinum, fjarlægja allar persónulegar upplýsingar og gera öll öryggisaðgangsorð óvirk. Við þjónustu kann efninu í geymslumiðli Apple-vörunnar að verða eytt, það fjarlægt og/eða það forsniðið.
Að ábyrgðarþjónustu lokinni er Apple-vörunni þinni eða vörunni sem kemur í stað hennar skilað til þín með sömu stillingum Apple-vörunnar þinnar og við upphafleg kaup, auk viðeigandi uppfærslna. Apple kann að setja upp hugbúnaðaruppfærslur, sem hluta af ábyrgðarþjónustu, sem mun koma í veg fyrir að Apple-varan noti eldri útgáfu kerfishugbúnaðar. Forrit frá þriðju aðilum sem uppsett eru í Apple-vörunni eru hugsanlega ekki samhæf eða virka ekki í Apple-vörunni eftir uppfærslu kerfishugbúnaðar. Þú berð ábyrgð á því að setja aftur upp öll önnur hugbúnaðarforrit, gögn og upplýsingar. Endurheimt og enduruppsetning annarra hugbúnaðarforrita, gagna og upplýsinga falla ekki undir þessa ábyrgð.
Þú kannt að þurfa þjónustu í landi sem ekki er innkaupalandið. Í slíkum tilvikum þarftu að fara að öllum viðeigandi innflutnings- og útflutningslögum og -reglugerðum og bera ábyrgð á öllum tollgjöldum, virðisaukaskatti og öðrum tengdum sköttum og gjöldum.
HVERNIG BREGST APPLE VIÐ ÁBYRGÐARKRÖFU?
Ef þú leggur fram kröfu til Apple á ábyrgðartímabilinu í samræmi við þessa ábyrgð mun Apple, að eigin ákvörðun:
(i) gera við Apple-vöruna með nýjum eða notuðum varahlutum frá Apple sem hafa verið prófaðir og uppfylla virknikröfur Apple, eða
(ii) skipta út Apple-vörunni fyrir sambærilega vöru af sömu tegund (eða, með leyfi frá þér, vöru sem hefur sömu eða að mestu leyti svipaða eiginleika og upprunalega varan – t.d. aðra gerð með sömu eiginleika eða sömu gerð í öðrum lit) sem er ný eða samsett úr nýjum og/eða notuðum varahlutum frá Apple og hefur verið prófuð og staðist virknikröfur Apple, eða
(iii) endurgreiða þér kaupverðið í skiptum fyrir Apple-vöruna þína.
Þegar skipt er um vöru eða varahlut eða endurgreiðsla á sér stað verður skiptivaran þín eign og útskipta eða endurgreidda varan verður eign Apple.
Varahlutur eða skiptivara eða viðgerð Apple-vara fellur undir eftirstandandi ábyrgðartímabil upphaflegu Apple-vörunnar eða gildir í níutíu (90) daga frá skiptum eða viðgerð, eftir því hvort veitir þér lengri ábyrgð.
Ef þjónustu er leitað í landi sem er annað en landið sem Apple-varan var keypt í kann Apple að gera við eða skipta út vörum og varahlutum með sambærilegum vörum og varahlutum sem uppfylla staðla viðkomandi lands.
HVERNIG Á AÐ FÁ ÁBYRGÐARÞJÓNUSTU?
Opnaðu og lestu eftirfarandi nethjálp áður en þú leitar ábyrgðarþjónustu:
Alþjóðlegar þjónustuupplýsingar
Viðurkenndir þjónustuaðilar Apple, viðurkenndir endursöluaðilar Apple og Apple-verslanir
Stuðningur og þjónusta Apple
www.apple.com/support/contact/phone_contacts.html
Ókeypis stuðningur Apple
www.apple.com/support/country/?dest=complimentary
Ef þú ert ekki með internettengingu eða ekki tókst að laga Apple-vöruna eftir þessum leiðum skaltu hafa samband við fulltrúa Apple, eða, ef við á, smásöluverslun í eigu Apple („Apple-verslun“) eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple og viðkomandi aðilar munu aðstoða þig við að ákvarða hvort Apple-varan þín þarfnast þjónustu og, ef svo er, upplýsa þig um hvaða ábyrgðarþjónustukostir Apple sem taldir eru upp hér á eftir eiga við.
Áður en ábyrgðarþjónusta er veitt kann Apple eða fulltrúar þess að krefja þig um kaupkvittun, spyrja þig spurninga til að auðvelda greiningu mögulegra vandamála og biðja þig að fylgja ábyrgðarþjónustuferli Apple, s.s. að fylgja leiðbeiningum fyrir pökkun og flutning Apple-vara þegar um þjónustu með pósti er að ræða.
Ekki þarf að sanna að vandamálið sem um ræðir hafi verið til staðar við afhendingu til að fá þjónustu og stuðning samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs, nema vandamálið passi ekki við eðli ágallans.
ÁBYRGÐARÞJÓNUSTUKOSTIR
Apple mun að eigin ákvörðun, allt eftir tilteknum kringumstæðum, sérstaklega gerð Apple-vörunnar, veita ábyrgðarþjónustu með einum eða fleiri eftirfarandi valkosta:
Apple veitir ábyrgðarþjónustu með einum af eftirfarandi valkostum:
(i) Þjónusta á staðnum. Apple kann að biðja þig um að skila Apple-vörunni þinni inn til Apple-verslunar eða viðurkennds þjónustuaðila Apple sem býður upp á þjónustu á staðnum. Hugsanlega verður Apple-varan þín send viðgerðarþjónustu Apple. Þegar þú færð tilkynningu um að þjónustu sé lokið sækirðu Apple-vöruna í Apple-verslun eða til viðurkennds þjónustuaðila Apple án tafar nema Apple tilkynni þér að þú fáir Apple-vöruna senda frá viðgerðarþjónustu Apple.
(ii) Þjónusta í pósti. Ef Apple velur að veita þjónustu í pósti mun Apple senda þér fyrirframgreidd farmbréf og, ef við á, umbúðir og leiðbeiningar um hvernig á að pakka Apple-vörunni og merkja hana rétt svo að þú getir sent Apple-vöruna þína til viðgerðarþjónustu Apple eða viðurkennds þjónustuaðila Apple. Þegar þjónustu er lokið mun viðgerðarþjónusta eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple skila Apple-vörunni til þín. Apple mun borga fyrir flutning til og frá staðsetningu þinni ef öllum leiðbeiningum varðandi pökkunaraðferð og sendingu Apple-vörunnar er fylgt.
(iii) Þjónusta fyrir eigin viðgerðir notanda („eigin viðgerðir“). Samkvæmt þjónustu Apple fyrir eigin viðgerðir notanda mun Apple útvega skiptivöru eða varahluti sem auðvelt er að skipta um eða aukabúnað fyrir vöru, s.s. mús eða lyklaborð, sem hægt er að skipta um án verkfæra. Athugaðu: Apple ber enga ábyrgð á vinnukostnaði vegna þjónustu fyrir eigin viðgerðir notanda. Ef þú þarfnast frekari aðstoðar við skiptin skaltu hafa samband við Apple í símanúmerið hér á eftir eða heimsækja Apple-verslun eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple. Ef Apple velur að veita þjónustu fyrir eigin viðgerðir notanda gildir eftirfarandi ferli:
(a) Þjónusta þar sem Apple fer fram á skil á skiptivöru, varahlut eða aukabúnaði: Apple kann að biðja um kreditkortaheimild sem tryggingu fyrir smásöluverði skiptivörunnar, varahlutarins eða aukabúnaðarins og viðeigandi flutningskostnaði. Apple mun senda skiptivöruna, varahlutinn eða aukabúnaðinn til þín með leiðbeiningum um skipti, ef við á, og hvers kyns kröfum um að vörunni eða varahlutnum sem skipt var út verði skilað. Ef þú fylgir leiðbeiningunum mun Apple afturkalla kreditkortaheimildina og þú þarft ekki að greiða fyrir vöruna eða varahlutinn og flutning til og frá staðsetningu þinni. Ef þú skilar ekki vörunni, varahlutnum eða aukabúnaðinum sem skipt var um eins og sagt er til um eða skilar vöru, varahlut eða aukabúnaði sem þjónustan gildir ekki fyrir mun Apple gjaldfæra á kreditkortið þitt samkvæmt upphæð heimildarinnar. Ef þú getur ekki útvegað kreditkortaheimild stendur þér þjónustan hugsanlega ekki til boða og Apple mun bjóða þér annars konar þjónustu.
(b) Þjónusta þar sem Apple fer ekki fram á skil á skiptivöru, varahlut eða aukabúnaði: Apple mun senda skiptivöruna, varahlutinn eða aukabúnaðinn til þín þér að kostnaðarlausu með leiðbeiningum um uppsetningu, ef við á, og hvers kyns kröfum um förgun vörunnar, varahlutarins eða aukabúnaðarins sem skipt var út.
TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR
(i) Allir hlutar samningsins:
Fyrir utan réttindi þín á grundvelli laga um neytendakaup sem greint er frá í upphafi þessa skjals falla allar ábyrgðir, skilyrði og aðrir skilmálar sem ekki eru sett fram í þessu ábyrgðarskjali utan takmarkaðrar ábyrgðar Apple til eins árs. Sum lönd leyfa ekki takmarkanir á gildistíma slíkra ábyrgða, skilyrða og/eða undirskilinna skilmála og því kann framangreind takmörkun ekki að eiga við þig.
(ii) Afsal ábyrgðar vegna gagna:
Apple ábyrgist ekki, gefur sig út fyrir eða samþykkir að geta gert við eða skipt um Apple-vöru samkvæmt þessari ábyrgð án þess að upplýsingar og/eða gögn séu í hættu og/eða glatist úr Apple-vörunni.
(iii) Takmörkun ábyrgðar:
Undir engum kringumstæðum skal Apple bera ábyrgð á:
- tapi sem ekki er til komið vegna brota okkar á þessu ábyrgðarskjali;
- tapi eða tjóni sem ekki var, þegar varan var keypt, fyrirsjáanleg afleiðing af brotum Apple á þessu ábyrgðarskjali; eða
- rekstrartapi, hagnaðartapi, gagnatapi eða glötuðum viðskiptatækifærum.
Ákvæði í þessu ábyrgðarskjali skulu ekki ná yfir (i) dauðsföll eða líkamstjón, (ii) svik eða vítaverða vanrækslu; eða (iii) rangar staðhæfingar; eða (iv) aðra bótaábyrgð sem ekki má takmarka eða útiloka samkvæmt lögum.
ALMENNT
Hvorki endursöluaðilar, fulltrúar né starfsmenn Apple hafa heimild til að breyta, auka eða bæta við þessa ábyrgð.
Ef skilmáli er dæmdur ólöglegur eða óframkvæmanlegur skal hann felldur út úr þessari ábyrgð án þess að það hafi áhrif á lagagildi og framfylgni eftirstandandi skilmála.
Þessi ábyrgð fellur undir og er túlkuð samkvæmt lögum þess lands sem Apple-varan var keypt í.
© 2022 Apple Inc. Allur réttur áskilinn. Apple og Apple-merkið eru vörumerki Apple Inc., skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
010122 Iceland Universal Warranty v1.4
-
Takmörkuð ábyrgð Apple til eins (1) árs
Ísland -
Aðeins fyrir merkjavöru frá Apple
-
NEYTENDALÖG
Takmörkuð ábyrgð Apple til eins árs er óáskilin ábyrgð frá framleiðanda. Í henni felast réttindi sem aðskilin eru réttindum neytendalaga, meðal annars réttindi vegna vara sem uppfylla ekki kröfur.
Sem slík er takmörkuð ábyrgð Apple til eins árs viðbót við, en kemur ekki í staðinn fyrir, réttindi sem neytendalög veita.
Ef vara er gölluð geta neytendur einkum og sér í lagi fært sér í nyt réttindi þau sem innifalin eru í lögum nr. 48/2003 um kaup neytenda. Kröfutími fyrir kaup neytenda á Íslandi er tvö ár (fimm ár ef endingartími vörunnar er áætlaður mun lengri en allajafna) frá afhendingu vöru. Slíkar kröfur falla undir réttindi og kröfur sem kveðið er á um í landslögum.
Neytendur geta valið hvort þeir fara fram á þjónustu samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs eða neytendalögum.
Mikilvægt: Skilmálar takmarkaðrar ábyrgðar Apple til eins árs eiga ekki við þegar krafa er lögð fram samkvæmt neytendalögum.
Frekari upplýsingar um neytendalög fást á vefsvæði Apple (www.apple.com/legal/warranty/statutoryrights.html) eða hjá viðkomandi neytendasamtökum.
YFIR HVAÐ NÆR ÞESSI ÁBYRGÐ?
Apple Distribution International Ltd., Hollyhill Industrial Estate, Hollyhill, Cork, Írlandi, (eða síðari handhafi réttinda) („Apple“) ábyrgist vélbúnað og aukabúnað frá Apple í upprunalegum umbúðum („Apple-vara“) vegna galla í efni eða frágangi þegar hann er notaður í samræmi við notendahandbækur, tæknilýsingar og aðrar útgefnar leiðbeiningar fyrir Apple-vörur frá Apple í EITT (1) ÁR frá upphaflegum kaupum kaupanda („ábyrgðartímabil“). Þú getur nýtt þér úrræði fyrir Apple-vörur sem bjóðast með takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs á næsta þjónustustað Apple nánast hvar sem er í heiminum (upplýsingar í hlutanum „Hvernig á að fá ábyrgðarþjónustu“). Ef gallar í efni eða frágangi koma í ljós geturðu beint kröfum þínum til Apple, jafnvel þótt þú hafir keypt Apple-vöruna af þriðja aðila.
Athugaðu: Allar kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs falla undir skilmálana í þessu ábyrgðarskjali.
Að auki býður Apple upp á aðgang að tækniaðstoð í gegnum síma í níutíu (90) daga frá afhendingu Apple-varanna.
YFIR HVAÐ NÆR ÞESSI ÁBYRGÐ EKKI?
Þessi ábyrgð á ekki við vélbúnað eða hugbúnað sem ekki er frá Apple, jafnvel þótt hann sé innpakkaður eða seldur með vélbúnaði frá Apple.
Hugsanlega fylgir vörum sem ekki eru frá Apple ábyrgð frá framleiðanda sem býður upp á bætur til viðbótar við réttindi sem falin eru í neytendalögum. Upplýsingar er að finna á vöruumbúðum og í fylgiskjölum.
Upplýsingar um réttindi þín í tengslum við notkun hugbúnaðarins eru í meðfylgjandi leyfissamningi.
Þú getur fengið þjónustu í löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss án þess að þurfa að greiða fyrir flutning og meðhöndlun. Þjónustuvalkostir utan þessa svæðis kunna að vera takmarkaðir. Ef tiltekinn þjónustuvalkostur er ekki í boði fyrir Apple-vöruna í slíku landi skal Apple eða fulltrúi þess upplýsa þig um viðbótarkostnað vegna flutnings og meðhöndlunar sem kann að bætast við áður en þjónusta er veitt. Kostnaður vegna flutnings og meðhöndlunar bætist ekki við í löndum þar sem Apple starfrækir Apple-verslun eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple („viðurkenndur þjónustuaðili Apple“) (lista yfir núverandi þjónustustaði má finna á support.apple.com/kb/HT1434).
Þegar hringt er í Apple kann kostnaður við símtalið að falla á þig, allt eftir staðsetningu þinni. Símafyrirtækið þitt veitir frekari upplýsingar.
Þessi ábyrgð nær ekki til: (a) rekstrarvara, t.d. rafhlaðna eða hlífðarhúðunar sem gert er ráð fyrir að rýrni með tímanum, nema þegar bilunin er tilkomin vegna galla í efni eða frágangi; (b) útlitslegra skemmda, meðal annars rispa, beyglna og brotins plasts við tengi, nema þegar bilunin er tilkomin vegna galla í efni eða frágangi; (c) skemmda sem hljótast af notkun með íhlut eða vöru frá þriðja aðila sem uppfyllir ekki gæðalýsingu Apple-vörunnar (finna má gæðalýsingar Apple-vara á www.apple.com undir tæknilegum upplýsingum fyrir hverja vöru og einnig eru þær fáanlegar í verslunum); (d) skemmda sem rekja má til slysa, misnotkunar, rangrar notkunar, elds, vökva, jarðskjálfta eða annarra ytri þátta; (e) skemmda sem rekja má til notkunar Apple-vörunnar sem ekki er í samræmi við leiðbeiningar í notendahandbókum, tæknilýsingum og öðrum útgefnum leiðbeiningum Apple-vörunnar; (f) skemmda sem rekja má til vinnu (þ.m.t. uppfærslu og viðbóta) sem ekki er framkvæmd af fulltrúa Apple eða viðurkenndum þjónustuaðila Apple („viðurkenndur þjónustuaðili Apple“); (g) Apple-vöru sem hefur verið breytt til að breyta eiginleikum hennar eða afköstum án skriflegs leyfis frá Apple; (h) galla vegna eðlilegs slits eða aldurs Apple-vörunnar; (i) þeirra tilvika þegar raðnúmer hefur verið fjarlægt eða afmáð af Apple-vörunni eða (j) þeirra tilvika þegar Apple hefur fengið upplýsingar frá viðeigandi opinberum yfirvöldum um að vörunni hafi verið stolið eða ef þú getur ekki gert öryggisráðstafanir með°aðgangskóða óvirkar°eða aðrar°öryggisráðstafanir sem ætlað er að koma í veg fyrir aðgang að Apple-vörunni í leyfisleysi og þú getur ekki sannað með neinum hætti að þú sért heimilaður notandi vörunnar (t.d. með því að framvísa kvittun).
MIKILVÆGAR TAKMARKANIR
Apple kann að takmarka ábyrgðarþjónustu fyrir Apple TV við lönd þar sem Apple eða viðurkenndir endursöluaðilar þess selja tækið.
Að því er varðar iPad-tæki með tengingu við farsímakerfi og iPhone-tæki tryggir ábyrgðin þjónustu fyrir lönd innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Þjónustuvalkostir utan þessa svæðis kunna að vera takmarkaðir vegna tæknimála sem Apple hefur ekki stjórn á – sjá upplýsingar hvað varðar iPad-tæki með tengingu við farsímakerfi og iPhone-tæki á www.apple.com/iphone/LTE/ og www.apple.com/ipad/LTE/.
Að því er varðar iPad-tæki tryggir ábyrgðin ekki þjónustu í Kína vegna mismunar á Wi-Fi-tengingum sem Apple hefur ekki stjórn á.
ÞÍNAR SKYLDUR
EF APPLE-VARAN ÞÍN GETUR VISTAÐ HUGBÚNAÐARFORRIT, GÖGN OG AÐRAR UPPLÝSINGAR ÆTTIRÐU REGLULEGA AÐ TAKA ÖRYGGISAFRIT AF UPPLÝSINGUM Í GEYMSLUMIÐLI APPLE-VÖRUNNAR TIL AÐ TRYGGJA ÖRYGGI EFNISINS OG VERJA ÞAÐ MÖGULEGUM BILUNUM.
Áður en þú afhendir Apple-vöruna þína inn til ábyrgðarþjónustu skaltu taka öryggisafrit af efninu í geymslumiðlinum, fjarlægja allar persónulegar upplýsingar og gera öll öryggisaðgangsorð óvirk. Við þjónustu kann efninu í geymslumiðli Apple-vörunnar að verða eytt, það fjarlægt og/eða það forsniðið.
Að ábyrgðarþjónustu lokinni er Apple-vörunni þinni eða vörunni sem kemur í stað hennar skilað til þín með sömu stillingum Apple-vörunnar þinnar og við upphafleg kaup, auk viðeigandi uppfærslna. Apple kann að setja upp hugbúnaðaruppfærslur, sem hluta af ábyrgðarþjónustu, sem mun koma í veg fyrir að Apple-varan noti eldri útgáfu kerfishugbúnaðar. Forrit frá þriðju aðilum sem uppsett eru í Apple-vörunni eru hugsanlega ekki samhæf eða virka ekki í Apple-vörunni eftir uppfærslu kerfishugbúnaðar. Þú berð ábyrgð á því að setja aftur upp öll önnur hugbúnaðarforrit, gögn og upplýsingar. Endurheimt og enduruppsetning annarra hugbúnaðarforrita, gagna og upplýsinga falla ekki undir þessa ábyrgð.
Þú kannt að þurfa þjónustu í landi sem ekki er innkaupalandið. Í slíkum tilvikum þarftu að fara að öllum viðeigandi innflutnings- og útflutningslögum og -reglugerðum og bera ábyrgð á öllum tollgjöldum, virðisaukaskatti og öðrum tengdum sköttum og gjöldum.
Mikilvægt: Reyndu ekki að opna Apple-vöruna, nema því sé lýst í notendahandbókinni hvernig hún er opnuð, eða fjarlægja hlífðarhettur sem eru á Apple-vörunni. Ef Apple-varan er opnuð eða hlífðarhettur fjarlægðar gæti það valdið skemmdum sem þessi ábyrgð nær ekki yfir. Aðeins Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple ætti að þjónusta þessa Apple-vöru.
HVERNIG BREGST APPLE VIÐ ÁBYRGÐARKRÖFU?
Ef þú leggur fram kröfu til Apple á ábyrgðartímabilinu í samræmi við þessa ábyrgð mun Apple, að eigin ákvörðun:
(i) gera við Apple-vöruna með nýjum eða notuðum varahlutum sem eru samsvarandi nýjum hvað viðkemur afköstum og áreiðanleika eða
(ii) skipta út Apple-vörunni fyrir sömu gerð (eða með þínu samþykki vöru sem hefur svipaða virkni) sem er sett saman úr nýjum og/eða notuðum varahlutum sem eru samsvarandi nýjum hvað viðkemur afköstum og áreiðanleika eða
(iii) endurgreiða þér kaupverðið í skiptum fyrir Apple-vöruna þína.
Þegar skipt er um vöru eða varahlut eða endurgreiðsla á sér stað verður skiptivaran þín eign og útskipta eða endurgreidda varan verður eign Apple.
Varahlutur eða skiptivara eða viðgerð Apple-vara fellur undir eftirstandandi ábyrgðartímabil upphaflegu Apple-vörunnar eða gildir í níutíu (90) daga frá skiptum eða viðgerð, eftir því hvort veitir þér lengri ábyrgð.
Ef þjónustu er leitað í landi sem er annað en landið sem Apple-varan var keypt í kann Apple að gera við eða skipta út vörum og varahlutum með sambærilegum vörum og varahlutum sem uppfylla staðla viðkomandi lands.
HVERNIG Á AÐ FÁ ÁBYRGÐARÞJÓNUSTU?
Opnaðu og lestu eftirfarandi nethjálp áður en þú leitar ábyrgðarþjónustu:
Alþjóðlegar þjónustuupplýsingar
Viðurkenndir þjónustuaðilar Apple, viðurkenndir endursöluaðilar Apple og Apple-verslanir
Stuðningur og þjónusta Apple
www.apple.com/support/contact/phone_contacts.html
Ókeypis stuðningur Apple
www.apple.com/support/country/?dest=complimentary
Ef þú ert ekki með internettengingu eða ekki tókst að laga Apple-vöruna eftir þessum leiðum skaltu hafa samband við fulltrúa Apple, eða, ef við á, smásöluverslun í eigu Apple („Apple-verslun“) eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple og viðkomandi aðilar munu aðstoða þig við að ákvarða hvort Apple-varan þín þarfnast þjónustu og, ef svo er, upplýsa þig um hvaða ábyrgðarþjónustukostir Apple sem taldir eru upp hér á eftir eiga við.
Áður en ábyrgðarþjónusta er veitt kann Apple eða fulltrúar þess að krefja þig um kaupkvittun, spyrja þig spurninga til að auðvelda greiningu mögulegra vandamála og biðja þig að fylgja ábyrgðarþjónustuferli Apple, s.s. að fylgja leiðbeiningum fyrir pökkun og flutning Apple-vara þegar um þjónustu með pósti er að ræða.
Ekki þarf að sanna að vandamálið sem um ræðir hafi verið til staðar við afhendingu til að fá þjónustu og stuðning samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs, nema vandamálið passi ekki við eðli ágallans.
ÁBYRGÐARÞJÓNUSTUKOSTIR
Apple mun að eigin ákvörðun, allt eftir tilteknum kringumstæðum, sérstaklega gerð Apple-vörunnar, veita ábyrgðarþjónustu með einum eða fleiri eftirfarandi valkosta:
Apple veitir ábyrgðarþjónustu með einum af eftirfarandi valkostum:
(i) Þjónusta á staðnum. Apple kann að biðja þig um að skila Apple-vörunni þinni inn til Apple-verslunar eða viðurkennds þjónustuaðila Apple sem býður upp á þjónustu á staðnum. Hugsanlega verður Apple-varan þín send viðgerðarþjónustu Apple. Þegar þú færð tilkynningu um að þjónustu sé lokið sækirðu Apple-vöruna í Apple-verslun eða til viðurkennds þjónustuaðila Apple án tafar nema Apple tilkynni þér að þú fáir Apple-vöruna senda frá viðgerðarþjónustu Apple.
(ii) Þjónusta í pósti. Ef Apple velur að veita þjónustu í pósti mun Apple senda þér fyrirframgreidd farmbréf og, ef við á, umbúðir og leiðbeiningar um hvernig á að pakka Apple-vörunni og merkja hana rétt svo að þú getir sent Apple-vöruna þína til viðgerðarþjónustu Apple eða viðurkennds þjónustuaðila Apple. Þegar þjónustu er lokið mun viðgerðarþjónusta eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple skila Apple-vörunni til þín. Apple mun borga fyrir flutning til og frá staðsetningu þinni ef öllum leiðbeiningum varðandi pökkunaraðferð og sendingu Apple-vörunnar er fylgt.
(iii) Þjónusta fyrir eigin viðgerðir notanda („eigin viðgerðir“). Samkvæmt þjónustu Apple fyrir eigin viðgerðir notanda mun Apple útvega skiptivöru eða varahluti sem auðvelt er að skipta um eða aukabúnað fyrir vöru, s.s. mús eða lyklaborð, sem hægt er að skipta um án verkfæra. Athugaðu: Apple ber enga ábyrgð á vinnukostnaði vegna þjónustu fyrir eigin viðgerðir notanda. Ef þú þarfnast frekari aðstoðar við skiptin skaltu hafa samband við Apple í símanúmerið hér á eftir eða heimsækja Apple-verslun eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple. Ef Apple velur að veita þjónustu fyrir eigin viðgerðir notanda gildir eftirfarandi ferli:
(a) Þjónusta þar sem Apple fer fram á skil á skiptivöru, varahlut eða aukabúnaði: Apple kann að biðja um kreditkortaheimild sem tryggingu fyrir smásöluverði skiptivörunnar, varahlutarins eða aukabúnaðarins og viðeigandi flutningskostnaði. Apple mun senda skiptivöruna, varahlutinn eða aukabúnaðinn til þín með leiðbeiningum um skipti, ef við á, og hvers kyns kröfum um að vörunni eða varahlutnum sem skipt var út verði skilað. Ef þú fylgir leiðbeiningunum mun Apple afturkalla kreditkortaheimildina og þú þarft ekki að greiða fyrir vöruna eða varahlutinn og flutning til og frá staðsetningu þinni. Ef þú skilar ekki vörunni, varahlutnum eða aukabúnaðinum sem skipt var um eins og sagt er til um eða skilar vöru, varahlut eða aukabúnaði sem þjónustan gildir ekki fyrir mun Apple gjaldfæra á kreditkortið þitt samkvæmt upphæð heimildarinnar. Ef þú getur ekki útvegað kreditkortaheimild stendur þér þjónustan hugsanlega ekki til boða og Apple mun bjóða þér annars konar þjónustu.
(b) Þjónusta þar sem Apple fer ekki fram á skil á skiptivöru, varahlut eða aukabúnaði: Apple mun senda skiptivöruna, varahlutinn eða aukabúnaðinn til þín þér að kostnaðarlausu með leiðbeiningum um uppsetningu, ef við á, og hvers kyns kröfum um förgun vörunnar, varahlutarins eða aukabúnaðarins sem skipt var út.
TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR
(i) Allir hlutar samningsins:
Fyrir utan réttindi þín á grundvelli laga um neytendakaup sem greint er frá í upphafi þessa skjals falla allar ábyrgðir, skilyrði og aðrir skilmálar sem ekki eru sett fram í þessu ábyrgðarskjali utan takmarkaðrar ábyrgðar Apple til eins árs. Sum lönd leyfa ekki takmarkanir á gildistíma slíkra ábyrgða, skilyrða og/eða undirskilinna skilmála og því kann framangreind takmörkun ekki að eiga við þig.
(ii) Afsal ábyrgðar vegna gagna:
Apple ábyrgist ekki, gefur sig út fyrir eða samþykkir að geta gert við eða skipt um Apple-vöru samkvæmt þessari ábyrgð án þess að upplýsingar og/eða gögn séu í hættu og/eða glatist úr Apple-vörunni.
(iii) Takmörkun ábyrgðar:
Undir engum kringumstæðum skal Apple bera ábyrgð á:
- tapi sem ekki er til komið vegna brota okkar á þessu ábyrgðarskjali;
- tapi eða tjóni sem ekki var, þegar varan var keypt, fyrirsjáanleg afleiðing af brotum Apple á þessu ábyrgðarskjali; eða
- rekstrartapi, hagnaðartapi, gagnatapi eða glötuðum viðskiptatækifærum.
Ákvæði í þessu ábyrgðarskjali skulu ekki ná yfir (i) dauðsföll eða líkamstjón, (ii) svik eða vítaverða vanrækslu; eða (iii) rangar staðhæfingar; eða (iv) aðra bótaábyrgð sem ekki má takmarka eða útiloka samkvæmt lögum.
ALMENNT
Hvorki endursöluaðilar, fulltrúar né starfsmenn Apple hafa heimild til að breyta, auka eða bæta við þessa ábyrgð.
Ef skilmáli er dæmdur ólöglegur eða óframkvæmanlegur skal hann felldur út úr þessari ábyrgð án þess að það hafi áhrif á lagagildi og framfylgni eftirstandandi skilmála.
Þessi ábyrgð fellur undir og er túlkuð samkvæmt lögum þess lands sem Apple-varan var keypt í.
© 2020 Apple Inc. All rights reserved. Apple og Apple-merkið eru vörumerki Apple Inc., skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
060120-Iceland-Universal-Warranty-v1.3
-
Takmörkuð ábyrgð Apple til eins (1) árs – (ÍSLAND)
-
Aðeins fyrir merkjavöru frá Apple
-
NEYTENDALÖG
Takmörkuð ábyrgð Apple til eins árs er óáskilin ábyrgð frá framleiðanda. Í henni felast réttindi sem aðskilin eru réttindum neytendalaga, þ.m.t. en ekki takmarkað við réttindi vegna vara sem uppfylla ekki kröfur.
Sem slík er takmörkuð ábyrgð Apple til eins árs viðbót við, en kemur ekki í stað, réttinda sem neytendalög veita.
Ef vara er gölluð geta, einkum, neytendur fært sér í nyt réttindi þau sem innifalin eru í lögum nr. 48/2003 um kaup neytenda. Kröfutími fyrir kaup neytenda á Íslandi er tvö ár (fimm ár ef endingartími vörunnar er áætlaður mun lengri en alla jafna) frá afhendingu vöru. Slíkar kröfur falla undir réttindi og kröfur sem kveðið er á um í landslögum.
Neytendur geta valið hvort þeir fara fram á þjónustu samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs eða neytendalögum.
Mikilvægt: Skilmálar takmarkaðrar ábyrgðar Apple til eins árs eiga ekki við þegar krafa er lögð fram samkvæmt neytendalögum.
Frekari upplýsingar um neytendalög fást á vefsvæði Apple (www.apple.com/legal/warranty/statutoryrights.html) eða hjá viðkomandi neytendasamtökum.
YFIR HVAÐ NÆR ÞESSI ÁBYRGÐ?
Apple Distribution International í Hollyhill Industrial Estate Hollyhill, Cork, Írlandi (eða síðari handhafi réttinda) („Apple“) ábyrgist vélbúnað og aukabúnað frá Apple í upphaflegum umbúðum („Apple-vara“) vegna galla í efni eða frágangi þegar hann er notaður í samræmi við notendahandbækur, tæknilýsingar og aðrar útgefnar leiðbeiningar fyrir Apple-vörur frá Apple í EITT (1) ÁR frá upphaflegum kaupum kaupanda („ábyrgðartímabil“). Þú getur nýtt þér úrræði fyrir Apple-vörur sem bjóðast með takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs á næsta þjónustustað Apple nánast hvar sem er í heiminum (upplýsingar í hlutanum „Hvernig á að fá ábyrgðarþjónustu“). Ef gallar í efni eða frágangi koma í ljós geturðu beint kröfum þínum til Apple, jafnvel þótt þú hafir keypt Apple-vöruna af þriðja aðila.
Athugaðu: Allar kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs falla undir skilmálana í þessu ábyrgðarskjali.
Að auki býður Apple upp á aðgang að tækniaðstoð í gegnum síma í níutíu (90) daga frá afhendingu Apple-varanna.
YFIR HVAÐ NÆR ÞESSI ÁBYRGÐ EKKI?
Þessi ábyrgð á ekki við vélbúnað eða hugbúnað sem ekki er frá Apple, jafnvel þótt hann sé innpakkaður eða seldur með vélbúnaði frá Apple.
Hugsanlega fylgir vörum sem ekki eru frá Apple ábyrgð frá framleiðanda sem býður upp á bætur til viðbótar við réttindi sem falin eru í neytendalögum. Upplýsingar er að finna á vöruumbúðum og í fylgiskjölum.
Upplýsingar um réttindi þín í tengslum við notkun hugbúnaðarins eru í meðfylgjandi leyfissamningi.
Þú getur fengið þjónustu í löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss án þess að þurfa að greiða fyrir flutning og meðhöndlun. Þjónustuvalkostir utan þessa svæðis kunna að vera takmarkaðir. Ef tiltekinn þjónustuvalkostur er ekki í boði fyrir Apple-vöruna í slíku landi skal Apple eða fulltrúi þess upplýsa þig um viðbótarkostnað vegna flutnings og meðhöndlunar sem kann að bætast við áður en þjónusta er veitt. Kostnaður vegna flutnings og meðhöndlunar bætist ekki við í löndum þar sem Apple starfrækir Apple-verslun eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple („viðurkenndur þjónustuaðili Apple“) (lista yfir núverandi þjónustustaði má finna á support.apple.com/kb/HT1434).
Þegar hringt er í Apple kann kostnaður við símtalið að falla á þig, allt eftir staðsetningu þinni. Símafyrirtækið þitt veitir frekari upplýsingar.
Þessi ábyrgð nær ekki til: (a) rekstrarvara, t.d. rafhlaðna eða hlífðarhúðunar sem gert er ráð fyrir að rýrni með tímanum, nema þegar bilunin er tilkomin vegna galla í efni eða frágangi; (b) útlitslegra skemmda, meðal annars rispna, beyglna og brotins plasts við tengi, nema þegar bilunin er tilkomin vegna galla í efni eða frágangi; (c) skemmda sem hljótast af notkun með íhlut eða vöru frá þriðja aðila sem uppfyllir ekki gæðalýsingu Apple-vörunnar (finna má gæðalýsingar Apple-vara á www.apple.com undir tæknilegum upplýsingum fyrir hverja vöru og einnig eru þær fáanlegar í verslunum); (d) skemmda sem rekja má til slysa, misnotkunar, elds, vökva, jarðskjálfta eða annarra ytri þátta; (e) skemmda sem rekja má til notkunar Apple-vörunnar sem ekki er í samræmi við leiðbeiningar í notendahandbókum, tæknilýsingum og öðrum útgefnum leiðbeiningum Apple-vörunnar; (f) skemmda sem rekja má til vinnu (þ.m.t. uppfærslu og viðbóta) sem ekki er framkvæmd af fulltrúa Apple eða viðurkenndum þjónustuaðila Apple („viðurkenndur þjónustuaðili Apple“); (g) Apple-vöru sem hefur verið breytt til að breyta eiginleikum hennar eða afköstum án skriflegs leyfis frá Apple; (h) galla vegna eðlilegs slits eða aldurs Apple-vörunnar; (i) þeirra tilvika þegar raðnúmer hefur verið fjarlægt eða afmáð af Apple-vörunni eða (j) þeirra tilvika þegar Apple hefur fengið upplýsingar frá viðeigandi opinberum yfirvöldum um að vörunni hafi verið stolið eða ef þú getur ekki slökkt á öryggisráðstöfunum með aðgangskóða eða öðrum öryggisráðstöfunum sem ætlað er að koma í veg fyrir aðgang að Apple-vörunni í leyfisleysi og þú getur ekki sannað með neinum hætti að þú sért heimilaður notandi vörunnar (t.d. með því að framvísa kvittun).
MIKILVÆGAR TAKMARKANIR
Apple kann að takmarka ábyrgðarþjónustu fyrir Apple TV við lönd þar sem Apple eða viðurkenndir endursöluaðilar þess selja tækið.
Að því er varðar iPad-tæki með tengingu við farsímakerfi og iPhone-tæki tryggir ábyrgðin þjónustu fyrir lönd innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Þjónustuvalkostir utan þessa svæðis kunna að vera takmarkaðir vegna tæknimála sem Apple hefur ekki stjórn á – sjá upplýsingar hvað varðar iPad-tæki með tengingu við farsímakerfi og iPhone-tæki á www.apple.com/iphone/LTE/ og www.apple.com/ipad/LTE/.
Að því er varðar iPad-tæki tryggir ábyrgðin ekki þjónustu í Kína vegna mismunar á Wi-Fi-tengingum sem Apple hefur ekki stjórn á.
ÞÍNAR SKYLDUR
EF APPLE-VARAN ÞÍN GETUR VISTAÐ HUGBÚNAÐARFORRIT, GÖGN OG AÐRAR UPPLÝSINGAR ÆTTIRÐU REGLULEGA AÐ TAKA ÖRYGGISAFRIT AF UPPLÝSINGUM Í GEYMSLUMIÐLI APPLE-VÖRUNNAR TIL AÐ TRYGGJA ÖRYGGI EFNISINS OG VERJA ÞAÐ MÖGULEGUM BILUNUM.
Áður en þú afhendir Apple-vöruna þína inn til ábyrgðarþjónustu skaltu taka öryggisafrit af efninu í geymslumiðlinum, fjarlægja allar persónulegar upplýsingar og gera öll öryggisaðgangsorð óvirk. Við þjónustu kann efninu í geymslumiðli Apple-vörunnar að verða eytt, það fjarlægt og/eða það forsniðið.
Að ábyrgðarþjónustu lokinni er Apple-vörunni þinni eða vörunni sem kemur í stað hennar skilað til þín með sömu stillingum Apple-vörunnar þinnar og við upphafleg kaup, auk viðeigandi uppfærslna. Apple kann að setja upp hugbúnaðaruppfærslur, sem hluta af ábyrgðarþjónustu, sem mun koma í veg fyrir að Apple-varan noti eldri útgáfu kerfishugbúnaðar. Forrit frá þriðju aðilum sem uppsett eru í Apple-vörunni eru hugsanlega ekki samhæf eða virka ekki í Apple-vörunni eftir uppfærslu kerfishugbúnaðar. Þú berð ábyrgð á því að setja aftur upp öll önnur hugbúnaðarforrit, gögn og upplýsingar. Endurheimt og enduruppsetning annarra hugbúnaðarforrita, gagna og upplýsinga falla ekki undir þessa ábyrgð.
Þú kannt að þurfa þjónustu í landi sem ekki er innkaupalandið. Í slíkum tilvikum þarftu að fara að öllum viðeigandi innflutnings- og útflutningslögum og -reglugerðum og bera ábyrgð á öllum tollgjöldum, virðisaukaskatti og öðrum tengdum sköttum og gjöldum.
Mikilvægt: Reyndu ekki að opna Apple-vöruna nema því sé lýst í notendahandbókinni hvernig hún er opnuð eða fjarlægja hlífðarhettur sem eru á Apple-vörunni. Ef Apple-varan er opnuð eða hlífðarhettur fjarlægðar gæti það valdið skemmdum sem þessi ábyrgð nær ekki yfir. Aðeins Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple ætti að þjónusta þessa Apple-vöru.
HVERNIG BREGST APPLE VIÐ ÁBYRGÐARKRÖFU?
Ef þú leggur fram kröfu til Apple á ábyrgðartímabilinu í samræmi við þessa ábyrgð mun Apple, að eigin ákvörðun:
(i) gera við Apple-vöruna með nýjum eða notuðum varahlutum sem eru samsvarandi nýjum hvað viðkemur afköstum og áreiðanleika eða
(ii) skipta út Apple-vörunni fyrir sömu gerð (eða með þínu samþykki vöru sem hefur svipaða virkni) sem er sett saman úr nýjum og/eða notuðum varahlutum sem eru samsvarandi nýjum hvað viðkemur afköstum og áreiðanleika eða
(iii) endurgreiða þér kaupverðið í skiptum fyrir Apple-vöruna þína.
Þegar skipt er um vöru eða varahlut eða endurgreiðsla á sér stað verður skiptivaran þín eign og útskipta eða endurgreidda varan verður eign Apple.
Varahlutur eða skiptivara eða viðgerð Apple-vara fellur undir eftirstandandi ábyrgðartímabil upphaflegu Apple-vörunnar eða gildir í níutíu (90) daga frá skiptum eða viðgerð, eftir því hvort veitir þér lengri ábyrgð.
Ef þjónustu er leitað í landi sem er annað en landið sem Apple-varan var keypt í kann Apple að gera við eða skipta út vörum og varahlutum með sambærilegum vörum og varahlutum sem uppfylla staðla viðkomandi lands.
HVERNIG Á AÐ FÁ ÁBYRGÐARÞJÓNUSTU?
Opnaðu og lestu eftirfarandi nethjálp áður en þú leitar ábyrgðarþjónustu:
Alþjóðlegar þjónustuupplýsingar
Viðurkenndir þjónustuaðilar Apple, viðurkenndir endursöluaðilar Apple og Apple-verslanir
Ef þú ert ekki með internettengingu eða ekki tókst að laga Apple-vöruna eftir þessum leiðum skaltu hafa samband við fulltrúa Apple, eða, ef við á, smásöluverslun í eigu Apple („Apple-verslun“) eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple og viðkomandi aðilar munu aðstoða þig við að ákvarða hvort Apple-varan þín þarfnast þjónustu og, ef svo er, upplýsa þig um hvaða ábyrgðarþjónustukostir Apple sem taldir eru upp hér á eftir eiga við.
Áður en ábyrgðarþjónusta er veitt kann Apple eða fulltrúar þess að krefja þig um kaupkvittun, spyrja þig spurninga til að auðvelda greiningu mögulegra vandamála og biðja þig að fylgja ábyrgðarþjónustuferli Apple, s.s. að fylgja leiðbeiningum fyrir pökkun og flutning Apple-vara þegar um þjónustu með pósti er að ræða.
Ekki þarf að sanna að vandamálið sem um ræðir hafi verið til staðar við afhendingu til að fá þjónustu og stuðning samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs, nema vandamálið passi ekki við eðli ágallans.
ÁBYRGÐARÞJÓNUSTUKOSTIR
Apple mun að eigin ákvörðun, allt eftir tilteknum kringumstæðum, sérstaklega gerð Apple-vörunnar, veita ábyrgðarþjónustu með einum eða fleiri eftirfarandi valkosta:
Apple veitir ábyrgðarþjónustu með einum af eftirfarandi valkostum:
(i) Þjónusta á staðnum. Apple kann að biðja þig um að skila Apple-vörunni þinni inn til Apple-verslunar eða viðurkennds þjónustuaðila Apple sem býður upp á þjónustu á staðnum. Hugsanlega verður Apple-varan þín send viðgerðarþjónustu Apple. Þegar þú færð tilkynningu um að þjónustu sé lokið sækirðu Apple-vöruna í Apple-verslun eða til viðurkennds þjónustuaðila Apple án tafar nema Apple tilkynni þér að þú fáir Apple-vöruna senda frá viðgerðarþjónustu Apple.
(ii) Þjónusta í pósti. Ef Apple velur að veita þjónustu í pósti mun Apple senda þér fyrirframgreidd farmbréf og, ef við á, umbúðir og leiðbeiningar um hvernig á að pakka Apple-vörunni og merkja hana rétt svo að þú getir sent Apple-vöruna þína til viðgerðarþjónustu Apple eða viðurkennds þjónustuaðila Apple. Þegar þjónustu er lokið mun viðgerðarþjónusta eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple skila Apple-vörunni til þín. Apple mun borga fyrir flutning til og frá staðsetningu þinni ef öllum leiðbeiningum varðandi pökkunaraðferð og sendingu Apple-vörunnar er fylgt.
(iii) Þjónusta fyrir eigin viðgerðir notanda („eigin viðgerðir“). Samkvæmt þjónustu Apple fyrir eigin viðgerðir notanda mun Apple útvega skiptivöru eða varahluti sem auðvelt er að skipta um eða aukabúnað fyrir vöru, s.s. mús eða lyklaborð, sem hægt er að skipta um án verkfæra. Athugaðu: Apple ber enga ábyrgð á vinnukostnaði vegna þjónustu fyrir eigin viðgerðir notanda. Ef þú þarfnast frekari aðstoðar við skiptin skaltu hafa samband við Apple í símanúmerið hér á eftir eða heimsækja Apple-verslun eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple. Ef Apple velur að veita þjónustu fyrir eigin viðgerðir notanda gildir eftirfarandi ferli:
(a) Þjónusta þar sem Apple fer fram á skil á skiptivöru, varahlut eða aukabúnaði: Apple kann að biðja um kreditkortaheimild sem tryggingu fyrir smásöluverði skiptivörunnar, varahlutarins eða aukabúnaðarins og viðeigandi flutningskostnaði. Apple mun senda skiptivöruna, varahlutinn eða aukabúnaðinn til þín með leiðbeiningum um skipti, ef við á, og hvers kyns kröfum um að vörunni eða varahlutnum sem skipt var út verði skilað. Ef þú fylgir leiðbeiningunum mun Apple afturkalla kreditkortaheimildina og þú þarft ekki að greiða fyrir vöruna eða varahlutinn og flutning til og frá staðsetningu þinni. Ef þú skilar ekki vörunni, varahlutnum eða aukabúnaðinum sem skipt var um eins og sagt er til um eða skilar vöru, varahlut eða aukabúnaði sem þjónustan gildir ekki fyrir mun Apple gjaldfæra á kreditkortið þitt samkvæmt upphæð heimildarinnar. Ef þú getur ekki útvegað kreditkortaheimild stendur þér þjónustan hugsanlega ekki til boða og Apple mun bjóða þér annars konar þjónustu.
(b) Þjónusta þar sem Apple fer ekki fram á skil á skiptivöru, varahlut eða aukabúnaði: Apple mun senda skiptivöruna, varahlutinn eða aukabúnaðinn til þín þér að kostnaðarlausu með leiðbeiningum um uppsetningu, ef við á, og hvers kyns kröfum um förgun vörunnar, varahlutarins eða aukabúnaðarins sem skipt var út.
TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR
(i) Allir hlutar samningsins:
Fyrir utan réttindi þín á grundvelli laga um neytendakaup sem greint er frá í upphafi þessa skjals falla allar ábyrgðir, skilyrði og aðrir skilmálar sem ekki eru sett fram í þessu ábyrgðarskjali utan takmarkaðrar ábyrgðar Apple til eins árs. Sum lönd leyfa ekki takmarkanir á gildistíma slíkra ábyrgða, skilyrða og/eða undirskilinna skilmála og því kann framangreind takmörkun ekki að eiga við þig.
(ii) Afsal ábyrgðar vegna gagna:
Apple ábyrgist ekki, gefur sig út fyrir eða samþykkir að geta gert við eða skipt um Apple-vöru samkvæmt þessari ábyrgð án þess að upplýsingar og/eða gögn séu í hættu og/eða glatist úr Apple-vörunni.
(iii) Takmörkun ábyrgðar:
Undir engum kringumstæðum skal Apple bera ábyrgð á:
tapi sem ekki er til komið vegna brota okkar á þessu ábyrgðarskjali;
tapi eða tjóni sem ekki var, þegar varan var keypt, fyrirsjáanleg afleiðing af brotum Apple á þessu ábyrgðarskjali; eða
rekstrartapi, hagnaðartapi, gagnatapi eða glötuðum viðskiptatækifærum.
Ákvæði í þessu ábyrgðarskjali skulu ekki ná yfir (i) dauðsföll eða líkamstjón, (ii) svik eða vítaverða vanrækslu; eða (iii) rangar staðhæfingar; eða (iv) aðra bótaábyrgð sem ekki má takmarka eða útiloka samkvæmt lögum.
ALMENNT
Hvorki endursöluaðilar, fulltrúar né starfsmenn Apple hafa heimild til að breyta, auka eða bæta við þessa ábyrgð.
Ef skilmáli er dæmdur ólöglegur eða óframkvæmanlegur skal hann felldur út úr þessari ábyrgð án þess að það hafi áhrif á lagagildi og framfylgni eftirstandandi skilmála.
Þessi ábyrgð fellur undir og er túlkuð samkvæmt lögum þess lands sem Apple-varan var keypt í.
© 2016 Apple Inc. Allur réttur áskilinn. Apple og Apple-merkið eru vörumerki Apple Inc., skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
071816-Iceland-Universal-Warranty-v1.2
-
Takmörkuð ábyrgð Apple til eins (1) árs – (ÍSLAND)
-
Aðeins fyrir merkjavöru frá Apple
-
NEYTENDALÖG
Takmörkuð ábyrgð Apple til eins árs er óáskilin ábyrgð frá framleiðanda. Í henni felast réttindi sem aðskilin eru réttindum neytendalaga, meðal annars réttindi vegna vara sem uppfylla ekki kröfur.
Sem slík er takmörkuð ábyrgð Apple til eins árs viðbót við, en kemur ekki í staðinn fyrir, réttindi sem neytendalög veita.
Ef vara er gölluð geta neytendur einkum og sér í lagi fært sér í nyt réttindi þau sem innifalin eru í lögum nr. 48/2003 um kaup neytenda. Kröfutími fyrir kaup neytenda á Íslandi er tvö ár (fimm ár ef endingartími vörunnar er áætlaður mun lengri en allajafna) frá afhendingu vöru. Slíkar kröfur falla undir réttindi og kröfur sem kveðið er á um í landslögum.
Neytendur geta valið hvort þeir fara fram á þjónustu samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs eða neytendalögum.
Mikilvægt: Skilmálar takmarkaðrar ábyrgðar Apple til eins árs eiga ekki við þegar krafa er lögð fram samkvæmt neytendalögum.
Frekari upplýsingar um neytendalög fást á vefsvæði Apple (www.apple.com/legal/warranty/statutoryrights.html) eða hjá viðkomandi neytendasamtökum.
YFIR HVAÐ NÆR ÞESSI ÁBYRGÐ?
Apple Distribution International í Hollyhill Industrial Estate Hollyhill, Cork, Írlandi (eða síðari handhafi réttinda) („Apple“) ábyrgist vélbúnað og aukabúnað frá Apple í upphaflegum umbúðum („Apple-vara“) vegna galla í efni eða frágangi þegar hann er notaður í samræmi við notendahandbækur, tæknilýsingar og aðrar útgefnar leiðbeiningar fyrir Apple-vörur frá Apple í EITT (1) ÁR frá upphaflegum kaupum kaupanda („ábyrgðartímabil“). Þú getur nýtt þér úrræði fyrir Apple-vörur sem bjóðast með takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs á næsta þjónustustað Apple nánast hvar sem er í heiminum (upplýsingar í hlutanum „Hvernig á að fá ábyrgðarþjónustu“). Ef gallar í efni eða frágangi koma í ljós geturðu beint kröfum þínum til Apple, jafnvel þótt þú hafir keypt Apple-vöruna af þriðja aðila.
Athugaðu: Allar kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs falla undir skilmálana í þessu ábyrgðarskjali.
Að auki býður Apple upp á aðgang að tækniaðstoð í gegnum síma í níutíu (90) daga frá afhendingu Apple-varanna.
YFIR HVAÐ NÆR ÞESSI ÁBYRGÐ EKKI?
Þessi ábyrgð á ekki við vélbúnað eða hugbúnað sem ekki er frá Apple, jafnvel þótt hann sé innpakkaður eða seldur með vélbúnaði frá Apple.
Hugsanlega fylgir vörum sem ekki eru frá Apple ábyrgð frá framleiðanda sem býður upp á bætur til viðbótar við réttindi sem falin eru í neytendalögum. Upplýsingar er að finna á vöruumbúðum og í fylgiskjölum.
Upplýsingar um réttindi þín í tengslum við notkun hugbúnaðarins eru í meðfylgjandi leyfissamningi.
Þú getur fengið þjónustu í löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss án þess að þurfa að greiða fyrir flutning og meðhöndlun. Þjónustuvalkostir utan þessa svæðis kunna að vera takmarkaðir. Ef tiltekinn þjónustuvalkostur er ekki í boði fyrir Apple-vöruna í slíku landi skal Apple eða fulltrúi þess upplýsa þig um viðbótarkostnað vegna flutnings og meðhöndlunar sem kann að bætast við áður en þjónusta er veitt. Kostnaður vegna flutnings og meðhöndlunar bætist ekki við í löndum þar sem Apple starfrækir Apple-verslun eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple („viðurkenndur þjónustuaðili Apple“) (lista yfir núverandi þjónustustaði má finna á support.apple.com/kb/HT1434).
Þegar hringt er í Apple kann kostnaður við símtalið að falla á þig, allt eftir staðsetningu þinni. Símafyrirtækið þitt veitir frekari upplýsingar.
Þessi ábyrgð nær ekki til: (a) rekstrarvara, t.d. rafhlaðna eða hlífðarhúðunar sem gert er ráð fyrir að rýrni með tímanum, nema þegar bilunin er tilkomin vegna galla í efni eða frágangi; (b) útlitslegra skemmda, meðal annars rispna, beyglna og brotins plasts við tengi, nema þegar bilunin er tilkomin vegna galla í efni eða frágangi; (c) skemmda sem hljótast af notkun með íhlut eða vöru frá þriðja aðila sem uppfyllir ekki gæðalýsingu Apple-vörunnar (finna má gæðalýsingar Apple-vara á www.apple.com undir tæknilegum upplýsingum fyrir hverja vöru og einnig eru þær fáanlegar í verslunum); (d) skemmda sem rekja má til slysa, misnotkunar, elds, jarðskjálfta eða annarra ytri þátta; (e) skemmda sem rekja má til notkunar Apple-vörunnar sem ekki er í samræmi við leiðbeiningar í notendahandbókum, tæknilýsingum og öðrum útgefnum leiðbeiningum Apple-vörunnar; (f) skemmda sem rekja má til vinnu (þ.m.t. uppfærslu og viðbóta) sem ekki er framkvæmd af fulltrúa Apple eða viðurkenndum þjónustuaðila Apple („viðurkenndur þjónustuaðili Apple“); (g) Apple-vöru sem hefur verið breytt til að breyta eiginleikum hennar eða afköstum án skriflegs leyfis frá Apple; (h) galla vegna eðlilegs slits eða aldurs Apple-vörunnar; (i) þeirra tilvika þegar raðnúmer hefur verið fjarlægt eða afmáð af Apple-vörunni eða (j) þeirra tilvika þegar Apple hefur fengið upplýsingar frá viðeigandi opinberum yfirvöldum um að vörunni hafi verið stolið eða ef þú getur ekki slökkt á öryggisráðstöfunum með aðgangskóða eða öðrum öryggisráðstöfunum sem ætlað er að koma í veg fyrir aðgang að Apple-vörunni í leyfisleysi og þú getur ekki sannað með neinum hætti að þú sért heimilaður notandi vörunnar (t.d. með því að framvísa kvittun).
MIKILVÆGAR TAKMARKANIR
Apple kann að takmarka ábyrgðarþjónustu fyrir Apple Watch og Apple TV við lönd þar sem Apple eða viðurkenndir endursöluaðilar þess selja tækið.
Að því er varðar iPad-tæki með tengingu við farsímakerfi og iPhone-tæki tryggir ábyrgðin þjónustu fyrir lönd innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Þjónustuvalkostir utan þessa svæðis kunna að vera takmarkaðir vegna tæknimála sem Apple hefur ekki stjórn á – sjá upplýsingar hvað varðar iPad-tæki með tengingu við farsímakerfi og iPhone-tæki á www.apple.com/iphone/LTE/ og www.apple.com/ipad/LTE/.
Að því er varðar iPad-tæki tryggir ábyrgðin ekki þjónustu í Kína vegna mismunar á Wi-Fi-tengingum sem Apple hefur ekki stjórn á.
ÞÍNAR SKYLDUR
EF APPLE-VARAN ÞÍN GETUR VISTAÐ HUGBÚNAÐARFORRIT, GÖGN OG AÐRAR UPPLÝSINGAR ÆTTIRÐU REGLULEGA AÐ TAKA ÖRYGGISAFRIT AF UPPLÝSINGUM Í GEYMSLUMIÐLI APPLE-VÖRUNNAR TIL AÐ TRYGGJA ÖRYGGI EFNISINS OG VERJA ÞAÐ MÖGULEGUM BILUNUM.
Áður en þú afhendir Apple-vöruna þína inn til ábyrgðarþjónustu skaltu taka öryggisafrit af efninu í geymslumiðlinum, fjarlægja allar persónulegar upplýsingar og gera öll öryggisaðgangsorð óvirk. Við þjónustu kann efninu í geymslumiðli Apple-vörunnar að verða eytt, það fjarlægt og/eða það forsniðið.
Að ábyrgðarþjónustu lokinni er Apple-vörunni þinni eða vörunni sem kemur í stað hennar skilað til þín með sömu stillingum Apple-vörunnar þinnar og við upphafleg kaup, auk viðeigandi uppfærslna. Apple kann að setja upp hugbúnaðaruppfærslur, sem hluta af ábyrgðarþjónustu, sem mun koma í veg fyrir að Apple-varan noti eldri útgáfu kerfishugbúnaðar. Forrit frá þriðju aðilum sem uppsett eru í Apple-vörunni eru hugsanlega ekki samhæf eða virka ekki í Apple-vörunni eftir uppfærslu kerfishugbúnaðar. Þú berð ábyrgð á því að setja aftur upp öll önnur hugbúnaðarforrit, gögn og upplýsingar. Endurheimt og enduruppsetning annarra hugbúnaðarforrita, gagna og upplýsinga falla ekki undir þessa ábyrgð.
Þú kannt að þurfa þjónustu í landi sem ekki er innkaupalandið. Í slíkum tilvikum þarftu að fara að öllum viðeigandi innflutnings- og útflutningslögum og -reglugerðum og bera ábyrgð á öllum tollgjöldum, virðisaukaskatti og öðrum tengdum sköttum og gjöldum.
Mikilvægt: Reyndu ekki að opna Apple-vöruna nema því sé lýst í notendahandbókinni hvernig hún er opnuð eða fjarlægja hlífðarhettur sem eru á Apple-vörunni. Ef Apple-varan er opnuð eða hlífðarhettur fjarlægðar gæti það valdið skemmdum sem þessi ábyrgð nær ekki yfir. Aðeins Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple ætti að þjónusta þessa Apple-vöru.
HVERNIG BREGST APPLE VIÐ ÁBYRGÐARKRÖFU?
Ef þú leggur fram kröfu til Apple á ábyrgðartímabilinu í samræmi við þessa ábyrgð mun Apple, að eigin ákvörðun:
(i) gera við Apple-vöruna með nýjum eða notuðum varahlutum sem eru samsvarandi nýjum hvað viðkemur afköstum og áreiðanleika eða
(ii) skipta út Apple-vörunni fyrir sömu gerð (eða með þínu samþykki vöru sem hefur svipaða virkni) sem er sett saman úr nýjum og/eða notuðum varahlutum sem eru samsvarandi nýjum hvað viðkemur afköstum og áreiðanleika eða
(iii) endurgreiða þér kaupverðið í skiptum fyrir Apple-vöruna þína.
Þegar skipt er um vöru eða varahlut eða endurgreiðsla á sér stað verður skiptivaran þín eign og útskipta eða endurgreidda varan verður eign Apple.
Varahlutur eða skiptivara eða viðgerð Apple-vara fellur undir eftirstandandi ábyrgðartímabil upphaflegu Apple-vörunnar eða gildir í níutíu (90) daga frá skiptum eða viðgerð, eftir því hvort veitir þér lengri ábyrgð.
Ef þjónustu er leitað í landi sem er annað en landið sem Apple-varan var keypt í kann Apple að gera við eða skipta út vörum og varahlutum með sambærilegum vörum og varahlutum sem uppfylla staðla viðkomandi lands.
HVERNIG Á AÐ FÁ ÁBYRGÐARÞJÓNUSTU?
Opnaðu og lestu eftirfarandi nethjálp áður en þú leitar ábyrgðarþjónustu:
Alþjóðlegar þjónustuupplýsingar
Viðurkenndir þjónustuaðilar Apple, viðurkenndir endursöluaðilar Apple og Apple-verslanir
Ef þú ert ekki með internettengingu eða ekki tókst að laga Apple-vöruna eftir þessum leiðum skaltu hafa samband við fulltrúa Apple, eða, ef við á, smásöluverslun í eigu Apple („Apple-verslun“) eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple og viðkomandi aðilar munu aðstoða þig við að ákvarða hvort Apple-varan þín þarfnast þjónustu og, ef svo er, upplýsa þig um hvaða ábyrgðarþjónustukostir Apple sem taldir eru upp hér á eftir eiga við.
Áður en ábyrgðarþjónusta er veitt kann Apple eða fulltrúar þess að krefja þig um kaupkvittun, spyrja þig spurninga til að auðvelda greiningu mögulegra vandamála og biðja þig að fylgja ábyrgðarþjónustuferli Apple, s.s. að fylgja leiðbeiningum fyrir pökkun og flutning Apple-vara þegar um þjónustu með pósti er að ræða.
Ekki þarf að sanna að vandamálið sem um ræðir hafi verið til staðar við afhendingu til að fá þjónustu og stuðning samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs, nema vandamálið passi ekki við eðli ágallans.
ÁBYRGÐARÞJÓNUSTUKOSTIR
Apple mun að eigin ákvörðun, allt eftir tilteknum kringumstæðum, sérstaklega gerð Apple-vörunnar, veita ábyrgðarþjónustu með einum eða fleiri eftirfarandi valkosta:
Apple veitir ábyrgðarþjónustu með einum af eftirfarandi valkostum:
(i) Þjónusta á staðnum. Apple kann að biðja þig um að skila Apple-vörunni þinni inn til Apple-verslunar eða viðurkennds þjónustuaðila Apple sem býður upp á þjónustu á staðnum. Hugsanlega verður Apple-varan þín send viðgerðarþjónustu Apple. Þegar þú færð tilkynningu um að þjónustu sé lokið sækirðu Apple-vöruna í Apple-verslun eða til viðurkennds þjónustuaðila Apple án tafar nema Apple tilkynni þér að þú fáir Apple-vöruna senda frá viðgerðarþjónustu Apple.
(ii) Þjónusta í pósti. Ef Apple velur að veita þjónustu í pósti mun Apple senda þér fyrirframgreidd farmbréf og, ef við á, umbúðir og leiðbeiningar um hvernig á að pakka Apple-vörunni og merkja hana rétt svo að þú getir sent Apple-vöruna þína til viðgerðarþjónustu Apple eða viðurkennds þjónustuaðila Apple. Þegar þjónustu er lokið mun viðgerðarþjónusta eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple skila Apple-vörunni til þín. Apple mun borga fyrir flutning til og frá staðsetningu þinni ef öllum leiðbeiningum varðandi pökkunaraðferð og sendingu Apple-vörunnar er fylgt.
(iii) Þjónusta fyrir eigin viðgerðir notanda („eigin viðgerðir“). Samkvæmt þjónustu Apple fyrir eigin viðgerðir notanda mun Apple útvega skiptivöru eða varahluti sem auðvelt er að skipta um eða aukabúnað fyrir vöru, s.s. mús eða lyklaborð, sem hægt er að skipta um án verkfæra. Athugaðu: Apple ber enga ábyrgð á vinnukostnaði vegna þjónustu fyrir eigin viðgerðir notanda. Ef þú þarfnast frekari aðstoðar við skiptin skaltu hafa samband við Apple í símanúmerið hér á eftir eða heimsækja Apple-verslun eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple. Ef Apple velur að veita þjónustu fyrir eigin viðgerðir notanda gildir eftirfarandi ferli:
(a) Þjónusta þar sem Apple fer fram á skil á skiptivöru, varahlut eða aukabúnaði: Apple kann að biðja um kreditkortaheimild sem tryggingu fyrir smásöluverði skiptivörunnar, varahlutarins eða aukabúnaðarins og viðeigandi flutningskostnaði. Apple mun senda skiptivöruna, varahlutinn eða aukabúnaðinn til þín með leiðbeiningum um skipti, ef við á, og hvers kyns kröfum um að vörunni eða varahlutnum sem skipt var út verði skilað. Ef þú fylgir leiðbeiningunum mun Apple afturkalla kreditkortaheimildina og þú þarft ekki að greiða fyrir vöruna eða varahlutinn og flutning til og frá staðsetningu þinni. Ef þú skilar ekki vörunni, varahlutnum eða aukabúnaðinum sem skipt var um eins og sagt er til um eða skilar vöru, varahlut eða aukabúnaði sem þjónustan gildir ekki fyrir mun Apple gjaldfæra á kreditkortið þitt samkvæmt upphæð heimildarinnar. Ef þú getur ekki útvegað kreditkortaheimild stendur þér þjónustan hugsanlega ekki til boða og Apple mun bjóða þér annars konar þjónustu.
(b) Þjónusta þar sem Apple fer ekki fram á skil á skiptivöru, varahlut eða aukabúnaði: Apple mun senda skiptivöruna, varahlutinn eða aukabúnaðinn til þín þér að kostnaðarlausu með leiðbeiningum um uppsetningu, ef við á, og hvers kyns kröfum um förgun vörunnar, varahlutarins eða aukabúnaðarins sem skipt var út.
TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR
(i) Allir hlutar samningsins:
Fyrir utan réttindi þín á grundvelli laga um neytendakaup sem greint er frá í upphafi þessa skjals falla allar ábyrgðir, skilyrði og aðrir skilmálar sem ekki eru sett fram í þessu ábyrgðarskjali utan takmarkaðrar ábyrgðar Apple til eins árs. Sum lönd leyfa ekki takmarkanir á gildistíma slíkra ábyrgða, skilyrða og/eða undirskilinna skilmála og því kann framangreind takmörkun ekki að eiga við þig.
(ii) Afsal ábyrgðar vegna gagna:
Apple ábyrgist ekki, gefur sig út fyrir eða samþykkir að geta gert við eða skipt um Apple-vöru samkvæmt þessari ábyrgð án þess að upplýsingar og/eða gögn séu í hættu og/eða glatist úr Apple-vörunni.
(iii) Takmörkun ábyrgðar:
Undir engum kringumstæðum skal Apple bera ábyrgð á:
tapi sem ekki er til komið vegna brota okkar á þessu ábyrgðarskjali;
tapi eða tjóni sem ekki var, þegar varan var keypt, fyrirsjáanleg afleiðing af brotum Apple á þessu ábyrgðarskjali; eða
rekstrartapi, hagnaðartapi, gagnatapi eða glötuðum viðskiptatækifærum.
Ákvæði í þessu ábyrgðarskjali skulu ekki ná yfir (i) dauðsföll eða líkamstjón, (ii) svik eða vítaverða vanrækslu; eða (iii) rangar staðhæfingar; eða (iv) aðra bótaábyrgð sem ekki má takmarka eða útiloka samkvæmt lögum.
ALMENNT
Hvorki endursöluaðilar, fulltrúar né starfsmenn Apple hafa heimild til að breyta, auka eða bæta við þessa ábyrgð.
Ef skilmáli er dæmdur ólöglegur eða óframkvæmanlegur skal hann felldur út úr þessari ábyrgð án þess að það hafi áhrif á lagagildi og framfylgni eftirstandandi skilmála.
Þessi ábyrgð fellur undir og er túlkuð samkvæmt lögum þess lands sem Apple-varan var keypt í.
© 2016 Apple Inc. Allur réttur áskilinn. Apple og Apple-merkið eru vörumerki Apple Inc., skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
100615-Iceland-Universal-Warranty-v1.1
-
Vélbúnaður ábyrgðina
-
Takmörkuð ábyrgð Apple til eins (1) árs - (ÍSLAND)
Aðeins fyrir merkjavöru frá Apple -
NEYTENDALÖG
Takmörkuð ábyrgð Apple til eins árs er óáskilin ábyrgð frá framleiðanda. Í henni felast réttindi sem aðskilin eru réttindum neytendalaga, þ.m.t. en ekki takmarkað við réttindi vegna vara sem uppfylla ekki kröfur.
Sem slík er takmörkuð ábyrgð Apple til eins árs viðbót við, en kemur ekki í stað, réttinda sem neytendalög veita.
Ef vara er gölluð geta, einkum, neytendur fært sér í nyt réttindi þau sem innifalin eru í lögum nr. 48/2003 um kaup neytenda. Kröfutími fyrir kaup neytenda á Íslandi er tvö ár (fimm ár ef endingartími vörunnar er áætlaður mun lengri en alla jafna) frá afhendingu vöru. Slíkar kröfur falla undir réttindi og kröfur sem kveðið er á um í landslögum.
Neytendur geta valið hvort þeir fara fram á þjónustu samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs eða neytendalögum.
Mikilvægt: Skilmálar takmarkaðrar ábyrgðar Apple til eins árs eiga ekki við þegar krafa er lögð fram samkvæmt neytendalögum.
Frekari upplýsingar um neytendalög fást á vefsvæði Apple (https://www.apple.com/legal/warranty/statutoryrights.html) eða viðkomandi neytendasamtökum.
HVAÐ NÆR ÞESSI ÁBYRGÐ YFIR?
Apple Distribution International í Hollyhill Industrial Estate Hollyhill, Cork, Írlandi (eða síðari handhafi réttinda) ("Apple") ábyrgist vélbúnað og aukabúnað frá Apple í upphaflegum umbúðum ("Apple-vara") vegna galla í efni eða frágangi þegar hann er notaður í samræmi við notendahandbækur, tæknilýsingar og aðrar útgefnar leiðbeiningar fyrir Apple-vörur frá Apple í EITT (1) ÁR frá upphaflegum kaupum kaupanda ("ábyrgðartímabil"). Þú getur nýtt þér úrræði fyrir Apple-vörur sem bjóðast með takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs á næsta þjónustustað Apple nánast hvar sem er í heiminum (upplýsingar í hlutanum "Hvernig á að fá ábyrgðarþjónustu"). Ef gallar í efni eða frágangi koma í ljós geturðu beint kröfum þínum til Apple, jafnvel þótt þú hafir keypt Apple-vöruna af þriðja aðila.
Athugaðu: Allar kröfur sem lagðar er fram samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs falla undir skilmálana í þessu ábyrgðarskjali.
Að auki býður Apple upp á aðgang að tækniaðstoð í gegnum síma í níutíu (90) daga frá afhendingu Apple-vara.
HVAÐ NÆR ÞESSI ÁBYRGÐ EKKI YFIR?
Þessi ábyrgð á ekki við vélbúnað eða hugbúnað sem ekki er frá Apple, jafnvel þótt hann sé innpakkaður eða seldur með vélbúnaði frá Apple.
Hugsanlega fylgir vörum sem ekki eru frá Apple ábyrgð frá framleiðanda sem býður upp á bætur til viðbótar við réttindi sem falin eru í neytendalögum. Upplýsingar er að finna á vöruumbúðum og í fylgiskjölum.
Upplýsingar um réttindi þín í tengslum við notkun hugbúnaðarins eru í meðfylgjandi leyfissamningi.
Þjónustukostir er hugsanlega takmarkaðir ef leitað er eftir þjónustu í landi öðru en því sem Apple-varan var keypt. Ef ekki er hægt að nálgast þjónustu fyrir Apple-vöruna í því landi upplýsir Apple þig um viðbótarkostnað vegna flutnings og meðhöndlunar sem kann að bætast við áður en hægt er að veita þjónustu.
Þegar hringt er í Apple kann símakostnaður að vera innheimtur, allt eftir staðsetningu þinni. Símafyrirtækið þitt veitir frekari upplýsingar.
Þessi ábyrgð nær ekki til: (a) rekstrarvara, t.d. rafhlaða eða hlífðarhúðunar sem gert er ráð fyrir að rýrni með tímanum, nema þegar bilunin er tilkomin vegna galla í efni eða frágangi; (b) útlitslegra skemmda, þ.m.t. en ekki takmarkað við rispur, beyglur og brotið plast við tengi; (c) skemmda sem hljótast af notkun með annarri vöru; (d) skemmda sem rekja má til slysa, misnotkunar, snertingar við vökva, elds, jarðskjálfta eða annarra ytri þátta; (e) skemmda sem rekja má til notkunar Apple-vörunnar sem ekki er í samræmi við leiðbeiningar í notendahandbókum, tæknilýsingum og öðrum útgefnum leiðbeiningum Apple-vöru; (f) skemmda sem rekja má til vinnu (þ.m.t. uppfærslu og viðbóta) sem ekki er framkvæmd af fulltrúa Apple eða viðurkenndum þjónustuaðila Apple (Apple Authorized Service Provider ("AASP")); (g) Apple-vöru sem hefur verið breytt til að breyta eiginleikum hennar eða afköstum án skriflegs leyfis frá Apple; (h) galla vegna eðlilegs slits eða aldurs Apple-vörunnar; (i) þeirra tilvika þegar raðnúmer hefur verið fjarlægt eða afmáð af Apple-vörunni eða (j) þess ef varan er stolin eða Apple hefur gilda ástæðu til að telja að varan sé stolin samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
MIKILVÆG TAKMÖRKUN Á ÞJÓNUSTU FYRIR iPHONE OG iPAD.
Apple kann að takmarka þjónustu fyrir iPad og iPhone í Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og Sviss. Aðeins Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple ætti að þjónusta iPhone- eða iPad-vörur.
ÞÍNAR SKYLDUR
EF APPLE-VARAN ÞÍN GETUR VISTAÐ HUGBÚNAÐARFORRIT, GÖGN OG AÐRAR UPPLÝSINGAR ÆTTIRÐU REGLULEGA AÐ TAKA ÖRYGGISAFRIT AF UPPLÝSINGUM Í GEYMSLUMIÐLI APPLE-VÖRUNNAR TIL AÐ TRYGGJA ÖRYGGI EFNISINS OG VERJA ÞAÐ MÖGULEGUM BILUNUM.
Áður en þú leggur Apple-vöruna þína inn til ábyrgðarþjónustu skaltu taka öryggisafrit af efninu í geymslumiðlinum, fjarlægja allar persónulegar upplýsingar og gera öll öryggisaðgangsorð óvirk. Við þjónustu kann efninu í geymslumiðli Apple-vörunnar að verða eytt, það fjarlægt og/eða það forsniðið.
Að ábyrgðarþjónustu lokinni er Apple-vörunni þinni eða vörunni sem kemur í stað hennar skilað til þín með sömu stillingum Apple-vörunnar þinnar og við upphafleg kaup, auk viðeigandi uppfærslna. Apple kann að framkvæma uppsetningu hugbúnaðaruppfærslna, sem hluta af ábyrgðarþjónustu, sem mun koma í veg fyrir að Apple-varan noti eldri útgáfu kerfishugbúnaðar. Forrit frá þriðju aðilum sem uppsett eru í Apple-vörunni eru hugsanlega ekki samhæf eða virka ekki í Apple-vörunni eftir uppfærslu kerfishugbúnaðar. Þú berð ábyrgð á því að setja aftur upp öll önnur hugbúnaðarforrit, gögn og upplýsingar. Endurheimt og enduruppsetning annarra hugbúnaðarforrita, gagna eða upplýsinga falla ekki undir þessa ábyrgð.
Þú kannt að þurfa þjónustu í landi sem ekki er innkaupalandið. Í slíkum tilvikum þarftu að fylgja öllum viðeigandi innflutnings-og útflutningslögum og -reglugerðum og bera ábyrgð á öllum tollgjöldum, virðisaukaskatti og öðrum tengdum sköttum og gjöldum.
Mikilvægt: Ekki opna Apple-vöruna nema notendahandbókin innihaldi leiðbeiningar um hvernig hún er opnuð. Ef Apple-varan er opnuð kann það að valda skemmdum sem þessi ábyrgð nær ekki yfir.
HVERNIG BREGST APPLE VIÐ ÁBYRGÐARKRÖFU?
Ef þú leggur fram gilda kröfu samkvæmt þessari ábyrgð mun Apple, að eigin ákvörðun:
(i) gera við Apple-vöruna með nýjum eða notuðum varahlutum sem eru samsvarandi nýjum hvað viðkemur afköstum og áreiðanleika eða
(ii) skipta út Apple-vörunni fyrir vöru sem býður að minnsta kosti upp á sömu eiginleika og Apple-varan og er sett saman úr nýjum og/eða notuðum varahlutum sem eru samsvarandi nýjum hvað viðkemur afköstum og áreiðanleika eða
(iii) endurgreiða þér kaupverðið í skiptum fyrir Apple-vöruna þína.
Þegar skipt er um vöru eða varahlut eða endurgreiðsla á sér stað verður skiptivaran þín eign og útskipta eða endurgreidda varan verður eign Apple.
Varahlutur eða skiptivara eða viðgerð Apple-vara fellur undir eftirstandandi ábyrgðartímabil upphaflegu Apple-vörunnar eða gildir í níutíu (90) daga frá skiptum eða viðgerð, eftir því hvort veitir lengri ábyrgð.
Ef þjónustu er leitað í landi sem er annað en landið sem Apple-varan var keypt í kann Apple að gera við eða skipta út vörum og varahlutum með sambærilegum vörum og varahlutum sem uppfylla staðla viðkomandi lands.
HVERNIG Á AÐ FÁ ÁBYRGÐARÞJÓNUSTU?
Opnaðu og lestu eftirfarandi nethjálp áður en þú leitar ábyrgðarþjónustu:
- Alþjóðlegar þjónustuupplýsingar
- Viðurkenndir þjónustuaðilar Apple, viðurkenndir endursöluaðilar Apple og Apple-verslanir
- Stuðningur og þjónusta Apple
- Ókeypis stuðningur Apple
Ef þú ert ekki með internettengingu eða ekki tókst að laga Apple-vöruna eftir þessum leiðum skaltu hafa samband við fulltrúa Apple, eða, ef við á, Apple-verslun eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple og viðkomandi aðilar munu aðstoða þig við að ákvarða hvort Apple-varan þín þarfnast þjónustu og, ef svo er, munu upplýsa þig um hvaða ábyrgðarþjónustukostir Apple sem taldir eru upp hér að neðan eiga við.
Áður en ábyrgðarþjónusta er veitt kann Apple eða fulltrúar þess að krefja þig um kaupkvittun, spyrja þig spurninga til að auðvelda greiningu mögulegra vandamála og biðja þig að fylgja ábyrgðarþjónustuferli Apple, s.s. að fylgja leiðbeiningum fyrir pökkun og flutning Apple-vara þegar um þjónustu með pósti er að ræða.
Ekki þarf að sanna að vandamálið sem um ræðir hafi verið til staðar við afhendingu til að fá þjónustu og stuðning samkvæmt takmarkaðri ábyrgð Apple til eins árs, nema vandamálið passi ekki við eðli ágallans.
ÁBYRGÐARÞJÓNUSTUKOSTIR
Apple mun að eigin ákvörðun, allt eftir tilteknum kringumstæðum, sérstaklega gerð Apple-vörunnar, veita ábyrgðarþjónustu með einum eða fleiri eftirfarandi kosta:
(i) Þjónusta á staðnum. Apple kann að biðja þig um að skila Apple-vörunni þinni inn til Apple-verslunar eða viðurkennds þjónustuaðila Apple sem býður upp á þjónustu á staðnum. Hugsanlega verður Apple-varan þín send viðgerðarþjónustu Apple. Þegar þú færð tilkynningu um að þjónustu sé lokið þarftu að sækja Apple-vöruna í Apple-verslun eða hjá viðurkenndum þjónustuaðila Apple eða þú færð hana senda beint frá viðgerðarþjónustu Apple.
(ii) Þjónusta í pósti. Ef Apple velur að veita þjónustu í pósti mun Apple senda þér fyrirframgreidd farmbréf og, ef við á, umbúðir svo að þú getir sent Apple-vöruna þína til viðgerðarþjónustu eða viðurkennds þjónustuaðila Apple í samræmi við leiðbeiningar Apple. Þegar þjónustu er lokið mun viðgerðarþjónusta eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple skila Apple-vörunni til þín. Apple mun borga fyrir flutning til og frá staðsetningu þinni ef öllum leiðbeiningum er fylgt.
(iii) Þjónusta fyrir eigin viðgerðir notanda. Samkvæmt þjónustu Apple fyrir eigin viðgerðir notanda mun Apple útvega skiptivöru eða varahluti sem auðvelt er að skipta um eða aukabúnað fyrir vöru, s.s. mús eða lyklaborð, sem hægt er að skipta um án verkfæra. Athugaðu: Apple ber enga ábyrgð á vinnukostnaði vegna þjónustu fyrir eigin viðgerðir notanda. Ef þú þarfnast frekari aðstoðar við skiptin skaltu hafa samband við Apple með símanúmerinu hér að neðan eða heimsækja Apple-verslun eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple. Ef Apple velur að veita þjónustu fyrir eigin viðgerðir notanda gildir eftirfarandi ferli:
(a) Þjónusta þar sem Apple fer fram á skil á skiptivöru, varahlut eða aukabúnaði: Apple kann að biðja um kreditkortaheimild sem tryggingu fyrir smásöluverði skiptivörunnar, varahlutsins eða aukabúnaðarins og viðeigandi flutningskostnaði. Apple mun senda skiptivöruna, varahlutinn eða aukabúnaðinn til þín með leiðbeiningum um skipti, ef við á, og hvers kyns kröfum um að vörunni eða varahlutnum sem skipt var út verði skilað. Ef þú fylgir leiðbeiningunum mun Apple afturkalla kreditkortafærsluna og þú þarft ekki að greiða fyrir vöruna eða varahlutinn og flutning til og frá staðsetningu þinni. Ef þú skilar ekki vörunni, varahlutnum eða aukabúnaðinum sem skipt var um eins og sagt er til um eða skilar vöru, varahlut eða aukabúnaði sem þjónustan gildir ekki fyrir mun Apple gjaldfæra á kreditkortið þitt samkvæmt upphæð heimildarinnar. Ef þú getur ekki útvegað kreditkortaheimild stendur þér þjónustan hugsanlega ekki til boða og Apple mun bjóða þér annars konar þjónustu.
(b) Þjónusta þar sem Apple fer ekki fram á skil á skiptivöru, varahlut eða aukabúnaði: Apple mun senda skiptivöruna, varahlutinn eða aukabúnaðinn til þín þér að kostnaðarlausu með leiðbeiningum um uppsetningu, ef við á, og hvers kyns kröfum um förgun vörunnar, varahlutsins eða aukabúnaðarins sem skipt var út.
TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR
(i) Allir hlutar samningsins:
Fyrir utan réttindi þín samkvæmt neytendalögum eins greint er frá í upphafi þessa skjals falla allar ábyrgðir, skilyrði og aðrir skilmálar utan takmarkaðrar ábyrgðar Apple til eins ár. Sum lönd leyfa ekki takmarkanir á gildistíma slíkra ábyrgða, skilyrða og/eða undirskilinna skilmála og því kann takmörkunin hér að ofan ekki að eiga við þig.
(ii) Afsal ábyrgðar vegna gagna:
Apple ábyrgist ekki, gefur sig út fyrir eða samþykkir að geta gert við eða skipt um Apple-vöru samkvæmt þessari ábyrgð án þess að upplýsingar og/eða gögn séu í hættu og/eða glatist úr Apple-vörunni.
(iii) Takmörkun ábyrgðar:
Undir engum kringumstæðum skal Apple bera ábyrgð á:
- Tapi sem ekki er til komið vegna brota okkar á þessu ábyrgðarskjali;
- tapi eða tjóni sem ekki var, þegar varan var keypt, fyrirsjáanleg afleiðing af brotum Apple á þessu ábyrgðarskjali; eða
- rekstrartapi, hagnaðartapi, gagnatapi eða glötuðum viðskiptatækifærum.
Ákvæði í þessu ábyrgðarskjali skulu ekki ná yfir (i) dauðsföll eða líkamstjón, (ii) svik eða vítaverða vanrækslu; eða (iii) rangar staðhæfingar; eða (iv) aðra bótaábyrgð sem ekki má takmarka eða útiloka samkvæmt lögum.
PERSÓNUVERND
Apple mun meðhöndla og nota upplýsingar um viðskiptavini í samræmi við persónuverndarstefnu Apple fyrir viðskiptavini sem nálgast má á www.apple.com/legal/warranty/privacy.
ALMENNT
Hvorki endursöluaðilar, fulltrúar né starfsmenn Apple hafa heimild til að breyta, auka eða bæta við þessa ábyrgð.
Ef skilmáli er dæmdur ólöglegur eða óframfylgjanlegur skal hann felldur út úr þessari ábyrgð án þess að það hafi áhrif á lagagildi og framfylgjanleika eftirstandandi skilmála.
Þessi ábyrgð fellur undir og er túlkuð samkvæmt lögum þess lands sem Apple-varan var keypt í.
-
Ábyrgð á vélbúnaði
-
Apple eins (1) árs takmörkuð ábyrgð - iOS
Aðeins fyrir vörur merktar með Apple vörumerkinu -
TENGSL LAGA UM NEYTENDAVERND VIÐ ÁBYRGÐ ÞESSA
ÁBYRGÐ ÞESSI VEITIR ÞÉR TILTEKIN LAGALEG RÉTTINDI OG ÞÚ KANNT AÐ HAFA ÖNNUR RÉTTINDI, SEM ERU MISMUNANDI MILLI RÍKJA (EÐA MILLI LANDA EÐA LANDSVÆÐA). APPLE HVORKI ÚTILOKAR, TAKMARKAR NÉ ÓGILDIR TÍMABUNDIÐ NEIN RÉTTINDI SEM ÞÚ KANNT AÐ HAFA, Þ.M.T. ÞAU SEM KUNNA AÐ STAFA AF ÞVÍ AÐ EKKI ER FARIÐ AÐ ÁKVÆÐUM SÖLUSAMNINGS, NEMA AÐ ÞVÍ MARKI SEM HEIMILT ER SAMKVÆMT LÖGUM. TIL AÐ SKILJA RÉTTARSTÖÐU ÞÍNA TIL HLÍTAR ÆTTIR ÞÚ AÐ KYNNA ÞÉR LÖG BÚSETULANDS ÞÍNS, LANDSVÆÐIS EÐA RÍKIS.
ÁBYRGÐARTAKMARKANIR SEM FALLA UNDIR LÖG UM NEYTENDAVERND
AÐ ÞVÍ MARKI SEM LÖG LEYFA ER SÚ ÁBYRGÐ OG ÞAU ÚRRÆÐI SEM MÆLT ER FYRIR UM Í ÁBYRGÐ ÞESSARI ÞAU EINU SEM UM RÆÐIR OG KOMA ÞAU Í STAÐ ALLRA ANNARRA ÁBYRGÐA, ÚRRÆÐA OG SKILMÁLA, HVORT HELDUR SEM ER MUNNLEGRA, SKRIFLEGRA, LAGALEGRA, BEINNA EÐA ÓBEINNA. AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG HEIMILA VÍSAR APPLE FRÁ SÉR ALLRI ÁBYRGÐ, HVORT SEM ER SAMKVÆMT LÖGUM EÐA ÓBEINT, Þ.M.T., ÁN TAKMARKANA, ÁBYRGÐ Á SELJANLEIKA OG HÆFI TIL ÆTLAÐRAR NOTKUNAR OG ÁBYRGÐ VEGNA FALINNA EÐA DULINNA GALLA. AÐ ÞVÍ MARKI SEM EKKI ER HÆGT AÐ VÍSA FRÁ SÉR SLÍKRI ÁBYRGÐ, TAKMARKAR APPLE GILDISTÍMA OG ÚRRÆÐI SLÍKRAR ÁBYRGÐAR VIÐ GILDISTÍMA ÞESSARAR BEINU ÁBYRGÐAR OG, EINS OG APPLE KANN AÐ ÁKVEÐA UPP Á SITT EINDÆMI, VIÐ VIÐGERÐ EÐA SKIPTI EINS OG LÝST ER HÉR AÐ NEÐAN. SUM RÍKI (LÖND OG LANDSVÆÐI) HEIMILA EKKI TAKMARKANIR Á GILDISTÍMA ÓBEINNAR ÁBYRGÐAR (EÐA SKILMÁLA), OG KANN ÞVÍ AÐ VERA AÐ OFANGREIND TAKMÖRKUN GILDI EKKI UM ÞIG.
HVAÐ FELLUR UNDIR ÁBYRGÐ ÞESSA?
Apple ábyrgist iPhone, iPad eða iPod vélbúnað sem auðkenndur er með Apple vörumerkinu og fylgihluti sem eru í upprunalegum umbúðum („Apple vörur“) fyrir göllum í efni og vinnu miðað við eðlilega notkun, í samræmi við leiðbeiningar sem Apple hefur gefið út, í EITT (1) ÁR frá frá upprunalegum smásölukaupum endanotanda vörunnar („ábyrgðartími”). Útgefnar leiðbeiningar Apple taka til, en takmarkast þó ekki við, upplýsinga í tækniforskriftum, notendahandbókum og samskipta vegna þjónustu.
Vinsamlegast athugið: Allar kröfur sem hafðar eru uppi á grundvelli Apple takmörkuðu eins árs ábyrgðarinnar heyra undir skilmála þá sem fram koma í þessu ábyrgðarskjali.
HVAÐ FELLUR EKKI UNDIR ÁBYRGÐ ÞESSA?
Ábyrgð þessi gildir ekki um vélbúnað sem er ekki Apple vara né neinn hugbúnað, jafnvel þótt hann sé í sömu umbúðum eða seldur með Apple vélbúnaðinum. Framleiðendur, birgjar og útgefendur, aðrir en Apple, kunna að veita þér sína eigin ábyrgð – vinsamlegast hafið samband við þá til þess að nálgast frekari upplýsingar. Þessi ábyrgð nær ekki yfir hugbúnað sem Apple dreifir með eða án Apple vörumerkisins (þ.m.t. án þess að takmarkast við kerfishugbúnað). Vísað er til hugbúnaðarleyfisins sem fylgir hugbúnaðinum um nánari atriði að því er varðar rétt þinn varðandi notkun hans. Apple ábyrgist ekki að virkni vörunnar verði laus við allar truflanir eða villulaus. Apple ber ekki ábyrgð á skaða sem hlýst af því að ekki er farið eftir leiðbeiningum um notkun vörunnar.
Ábyrgð þessi gildir ekki um: (a) einnota vörur svo sem rafhlöður eða hlífðarhúð sem gert er ráð fyrir að eyðist með tímanum nema bilun hafi orðið vegna galla í efni eða vinnu; (b) útlitsskemmdir, þ.m.t. en ekki takmarkað við rispur, dældir og brotið plast á portum; (c) skemmdir af völdum notkunar með öðrum vörum; (d) skemmdir af völdum slysa, misnotkunar, rangrar notkunar, snertingar við vökva, eldsvoða, jarðskjálfta eða annarra ytri áhrifa; (e) skemmdir af völdum notkunar utan við leyft eða tilætlað notkunarsvið sem Apple tilgreinir; (f) skemmdir af völdum viðhalds (þ.m.t. uppfærslna og stækkana) sem framkvæmt er af aðila sem er ekki fulltrúi Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple; (g) Apple vöru sem hefur verið breytt til að breyta virkni eða getu án skriflegs samþykkis Apple; (h) galla vegna eðlilegs slits og notkunar eða annarra eðlilegra aldursmerkja vörunnar, og hún gildir ekki (i) ef hvers konar raðnúmer Apple vörunnar hefur verið fjarlægt eða gert ólæsilegt.
MIKILVÆG TAKMÖRKUN Á ÞJÓNUSTU FYRIR iPHONE OG iPAD.
Apple getur takmarkað ábyrgðarþjónustu fyrir iPhone og iPad við það land þar sem Apple eða viðurkenndir söluaðilar þess seldu Apple vöruna upprunalega.
ÁBYRGÐ ÞÍN
ÞÚ ÆTTIR AÐ TAKA REGLUBUNDIN ÖRYGGISAFRIT AF ÞEIM UPPLÝSINGUM SEM GEYMDAR ERU Á GEYMSLUMIÐLI APPLE VÖRU ÞINNAR TIL AÐ VERNDA INNIHALDIÐ OG SEM VARÚÐARRÁÐSTÖFUN VEGNA MÖGULEGRAR BILUNAR.
Áður en varan er afhent til ábyrgðarþjónustu, getur Apple eða fulltrúar þess, krafið þig um að sanna atriði er varða kaupin, svara spurningum til að greina möguleg vandamál og fylgja ábyrgðarferlinu til að fá ábyrgðarþjónustu. Áður en þú afhendir Apple vöruna þína til að fá ábyrgðarþjónustu ættir þú að taka sérstakt öryggisafrit af innihaldi geymslumiðilsins, fjarlægja allar persónulegar upplýsingar sem þú vilt vernda og gera öll lykilorð óvirk.
VIÐ ÁBYRGÐARÞJÓNUSTU VERÐUR GÖGNUM SEM VARA ÞÍN INNIHELDUR EYTT OG GEYMSLUMIÐILLINN ENDURFORSNIÐINN. APPLE OG FULLTRÚAR ÞESS BERA EKKI ÁBYRGÐ Á HUGBÚNAÐI, GÖGNUM EÐA ÖÐRUM UPPLÝSINGUM SEM KUNNA AÐ GLATAST Í GEYMSLUMIÐLINUM EÐA NOKKRUM ÖÐRUM HLUTA APPLE VÖRUNNAR SEM ER ANDLAG ÞJÓNUSTUNNAR.
Að lokinni ábyrgðarþjónustu verður Apple varan þín eða útskiptivaran endursend þér með sömu uppsetningarstillingum og þegar hún var keypt í upphafi, með fyrirvara um viðeigandi uppfærslur. Apple kann að setja upp uppfærslur á kerfishugbúnaðinum sem hluti af ábyrgðarþjónustu til að koma í veg fyrir að vélbúnaðurinn snúi aftur í fyrri útgáfu kerfishugbúnaðarins. Forrit frá þriðju aðilum sem sett hafa verið upp í Apple vöru þinni kunna að vera ósamhæf Apple vörunni vegna uppfærslu á kerfishugbúnaðinum. Þú berð ábyrgð á að setja upp allan annan hugbúnað, gögn og upplýsingar. Þessi ábyrgð nær ekki til endurheimta og enduruppsetningar annarra hugbúnaðarforrita, gagna og upplýsinga.
Mikilvægt: Opnið ekki Apple vöruna. Ef þessi Apple vara er opnuð getur það valdið skemmdum sem ábyrgð þessi nær ekki til. Aðeins Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple skal sinna viðhaldi á þessari Apple vöru.
HVAÐ MUN APPLE GERA EF EKKI ER FARIÐ AÐ SKILMÁLUM ÁBYRGÐARINNAR?
Ef Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili fær frá þér gilda kröfu innan gildistíma ábyrgðarinnar, mun Apple, eftir eigin ákvörðun (1) gera við Apple vöruna og nota til þess nýja eða uppgerða hluti sem eru jafngildir upprunalegum hlutum hvað varðar nothæfi og áreiðanleika, (2) skipta út Apple vörunni fyrir annað eintak sem er a.m.k. jafngilt nýju eintaki hvað varðar nothæfi og áreiðanleika, eða (3) endurgreiða kaupverð vörunnar gegn viðtöku Apple vörunnar.
Apple kann að fara fram á að þú skiptir um hluti sem notandi getur sett upp sjálfur eða vörur. Varahlutur eða vara, þ.m.t. hlutur sem notandi getur sjálfur sett upp, sem hefur verið settur upp í samræmi við leiðbeiningar frá Apple, öðlast ábyrgð sem varir annað hvort það sem eftir er af ábyrgðartíma upprunalegu vörunnar eða í níutíu (90) daga frá dagsetningu útskiptanna eða viðgerðarinnar, hvort sem veitir þér lengri ábyrgðartíma. Þegar vöru eða hlut er skipt út, eða endurgreiðsla á sér stað, verður varan eða hluturinn sem þú færð í staðinn þín eign og útskipti eða endurgreiddi hluturinn eign Apple.
HVERNIG Á AÐ NÁLGAST ÁBYRGÐARÞJÓNUSTU?
Skoðið neðangreind hjálpargögn á netinu áður en leitað er eftir ábyrgðarþjónustu. Ef varan virkar enn ekki rétt eftir að þessi hjálpargögn hafa verið notuð hafið þá samband við fulltrúa Apple, eða þegar við á, smásöluverslun í eigu Apple eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple með því að nota upplýsingarnar sem veittar eru hér að neðan. Fulltrúi frá Apple, eða viðurkenndur þjónustuaðili mun ákvarða hvort varan þarfnast þjónustu og, ef svo er, upplýsir þig um hvernig Apple mun veita hana. Ef haft er samband við Apple símleiðis getur annar kostnaður bæst við eftir því hvaðan hringt er.
Vísað er til upplýsinga á netinu hér að neðan um hvernig nálgast megi ábyrgðarþjónustu.
VALMÖGULEIKAR VEGNA ÁBYRGÐARÞJÓNUSTU
Apple mun veita ábyrgðarþjónustu með einni af eftirfarandi aðferðum eða fleiri:
(i) Þjónusta sem veitt er á staðnum. Þú getur komið með vöruna í smásöluverslun í eigu Apple eða til viðurkennds þjónustuaðila Apple þar sem þjónusta er veitt á staðnum. Þjónustan verður veitt á staðnum, eða að öðrum kosti getur smásöluverslunin í eigu Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple sent vöruna til viðgerðarverkstæðis Apple til viðgerðar. Þegar þér er tilkynnt að þjónustunni sé lokið, getur þú þá þegar endurheimt Apple vöruna úr smásöluversluninni í eigu Apple eða frá viðurkenndum þjónustuaðila Apple, eða Apple varan verður send beint til þín úr viðgerðarverkstæðinu.
(ii) Sendingarþjónusta. Telji Apple að Apple vara þín sé tæk til sendingarþjónustu, mun Apple senda þér fyrirframgreidd farmbréf og, ef það á við, umbúðir, til að gera þér kleift að senda vöruna á viðgerðarverkstæði Apple eða á viðurkenndan þjónustuaðila Apple í samræmi við leiðbeiningar Apple. Þegar þjónustunni er lokið, mun Apple viðgerðarverkstæðið eða viðurkenndi þjónustuaðilinn skila búnaðinum sem fellur undir ábyrgðarþjónustu til þín. Apple mun greiða sendingarkostnað ef öllum leiðbeiningum er fylgt.
(iii) Sjálfsþjónusta. Sjálfsþjónusta gerir þér kleift að gera við Apple vöruna þína sjálfur. Sé slík þjónusta möguleg fer hún fram með eftirfarandi hætti.
(a) Sé um að ræða sjálfsþjónustu þar sem endursenda þarf upprunalegu vöruna eða hlutinn getur Apple krafist heimildar til skuldfærslu af kreditkortareikningi sem tryggingu fyrir smásöluverði vörunnar eða varahlutarins sem þú færð sendan í skiptum og tilheyrandi flutningskostnaði. Getir þú ekki útvegað kreditkortaheimild kann sjálfsþjónusta ekki að standa þér til boða og mun Apple þá bjóða upp á þjónustuna með öðrum hætti. Apple mun senda þér útskiptivöru eða hlut með leiðbeiningum um uppsetningu, ef við á, og fyrirmæli um endursendingu útskiptivörunnar eða hlutarins. Ef þú fylgir leiðbeiningunum fellir Apple heimild sína til skuldfærslu af kreditkortareikningi úr gildi þannig að engin skuldfærsla verður framkvæmd vegna vörunnar eða hlutarins né vegna flutningskostnaðar. Ef þú skilar ekki útskiptu vörunni eða hlutnum eins og mælt er fyrir um eða varan eða hluturinn sem skipt er út fellur ekki undir ábyrgðarþjónustu mun Apple láta skuldfæra heimilaða fjárhæð af kreditkortareikningnum.
(b) Sé um að ræða sjálfsþjónustu þar sem ekki þarf að endursenda útskiptivöruna eða hlut mun Apple senda þér endurgjaldslaust útskiptivöru eða hlut ásamt leiðbeiningum um uppsetningu, ef við á, og fyrirmæli um ráðstöfun á útskiptivörunni eða hlutnum.
(c) Apple ber ekki ábyrgð á launakostnaði sem fellur á þig vegna sjálfsþjónustunnar. Þurfir þú á frekari aðstoð að halda, hafðu samband við Apple í símanúmerinu sem skráð er hér að neðan.
Apple áskilur sér rétt til að breyta því hvernig það veitir þér ábyrgðarþjónustu, og hvort að Apple vara þín sé tæk til að fá tiltekna þjónustutegund. Þjónustan takmarkast við þá möguleika sem eru fyrir hendi í landinu þar sem eftir henni er óskað. Þjónustumöguleikar, fáanlegir hlutir og viðbragðstími getur verið mismunandi milli landa. Þú gætir þurft að greiða sendingarkostnað ef ekki er hægt að veita þjónustu vegna Apple vörunnar í því landi þar sem hún er staðsett. Leitir þú eftir þjónustu í landi sem er ekki landið þar sem varan var upprunalega keypt, þarft þú að fara að gildandi lögum og reglum um innflutning og útflutning og greiða tolla, virðisaukaskatt og aðra skatta og gjöld eins og við á. Þegar alþjóðleg þjónusta býðst, kann Apple að gera við eða skipta út vörum eða hlutum fyrir sambærilegar vörur eða hluti sem uppfylla staðbundna staðla.
TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR
MEÐ ÞEIM UNDANTEKNINGUM SEM GETIÐ ER UM Í ÞESSARI ÁBYRGÐ OG AÐ ÞVÍ MARKI SEM LÖG LEYFA BER APPLE EKKI ÁBYRGÐ Á BEINU, SÉRSTÖKU, ÓBEINU EÐA AFLEIDDU TJÓNI VEGNA BROTS Á ÁBYRGÐARSKILMÁLUM EÐA SKILYRÐUM, NÉ SKV. NEINUM ÖÐRUM LAGASKILNINGI, Þ.M.T., ÁN ÞESS AÐ TAKMARKAST VIÐ, AFNOTAMISSI, TEKJUTAP, TAP Á RAUNVERULEGUM EÐA FYRIRSJÁANLEGUM HAGNAÐI (Þ.M.T. TAP Á HAGNAÐI AF SAMNINGUM), TAP Á PENINGAAFNOTUM, TAP Á FYRIRSJÁANLEGUM SPARNAÐI, VIÐSKIPTATAP, TAP Á TÆKIFÆRUM, TAP Á VIÐSKIPTAVILD, TAP Á ORÐSTÍR, TAP, SKEMMDIR Á, VÁSETNINGU EÐA SPILLINGU GAGNA EÐA ÓBEINT EÐA AFLEITT TAP AF HVERS KONAR VÖLDUM, ÞAR MEÐ TALIÐ VEGNA ENDURNÝJUNAR Á BÚNAÐI OG EIGNUM, HVERS KONAR KOSTNAÐUR AF ENDURHEIMTUM, FORRITUN EÐA ENDURGERÐ FORRITS EÐA GAGNA SEM GEYMD ERU Í EÐA NOTUÐ MEÐ APPLE VÖRUNNI OG HVERS KYNS MISBRESTUR Á AÐ TRÚNAÐAR SÉ GÆTT UM GÖGN SEM GEYMD ERU Í VÖRUNNI.
OFANGREINDAR TAKMARKANIR GILDA EKKI UM KRÖFUR VEGNA DAUÐSFALLA EÐA SLYSA Á FÓLKI, NÉ HVERS KYNS ÁBYRGÐ SKV. LÖGUM VEGNA HÁTTSEMI EÐA ATHAFNALEYSIS AF ÁSETNINGI OG/EÐA STÓRKOSTLEGU GÁLEYSI. APPLE VÍSAR FRÁ SÉR ÁBYRGÐ Á HVERS KYNS STAÐHÆFINGUM ÞESS EFNIS AÐ ÞAÐ GETI GERT VIÐ VÖRU SEM ÁBYRGÐ ÞESSI NÆR TIL EÐA SKIPT UM VÖRU ÁN HÆTTU FYRIR EÐA TAPS Á UPPLÝSINGUM SEM GEYMDAR ERU Í APPLE VÖRUNNI.
SUM RÍKI (LÖNG OG LANDSVÆÐI) HEIMILA EKKI TAKMARKANIR EÐA UNDANÞÁGUR FRÁ ÁBYRGÐ Á ÓBEINU EÐA AFLEIDDU TJÓNI, OG ÞVÍ KUNNA OFANGREINDAR TAKMARKANIR EKKI AÐ EIGA VIÐ UM ÞIG.
FRIÐHELGI EINKALÍFS.
Apple varðveitir og notar upplýsingar um viðskiptavini í samræmi við persónuverndarstefnu sína um viðskiptavini, sem hægt er að nálgast á www.apple.com/legal/internet-services/privacy.
ALMENNT
Engum endursöluaðila, umboðsaðila eða starfsmanni Apple er heimilt að breyta, framlengja eða bæta við þessa ábyrgðaryfirlýsingu. Þótt eitthvert ákvæði sé talið ólöglegt eða óframfylgjanlegt skal það ekki hafa áhrif á eða skerða lögmæti eða framfylgjanleika annarra ákvæða. Um ábyrgð þessa gilda lög þar sem Apple varan er keypt og skal túlka hana samkvæmt þeim. Apple er auðkennt í lok þessa skjals eftir því landi eða landsvæði þar sem varan var keypt. Apple, eða arftaki þess, er ábyrgðarveitandi samkvæmt ábyrgð þessari.
UPPLÝSINGASÍÐUR.
Nánari upplýsingar er að finna á eftirfarandi síðum:
ÁBYRGÐARAÐILAR Á SVÆÐI EÐA LANDI ÞAR SEM VARAN VAR KEYPT
Svæði/land þar sem varan var keypt Apple Heimilisfang Evrópa, Mið-Austurlönd og Afríka Öll lönd Apple Distribution International Hollyhill Industrial Estate Hollyhill, Cork, Republic of Ireland